Leikarinn sem lék hinn vonda Predator var góður gaur

Vídjó

Predator eða Rándýrið kom út árið 1987 og sló í gegn. Arnold Schwarzenegger lék foringja harðsvíraðs hóps bandarískra hermanna í frumskógum Mið-Ameríku sem rekast á ægilegt rándýr sem ættað er í fjarlægu sólkerfi. En hver lék þetta rándýr?

 

Hann hét Kevin Peter Hall og var, þrátt fyrir að hafa leikið hinn óhuggulega geimkarl,… [Lesa meira]

Draugur Frederick Douglass birtist í afró-auglýsingu

Vídjó

Vofa Frederick Douglass, sem var einn af leiðtogum frelsisbaráttu svartra í Bandaríkjunum á 19. öld, birtist í þessari auglýsingu fyrir hárvöruna Afro… [Lesa meira]

June Gudmundsdottir: Íslenska Hollywoodpersónan og „brandari ársins“

Árið 1992 sendi bandaríski leikstjórinn Robert Altman frá sér myndina The Player. Þetta var sérstök mynd, með fjölmörgum leikurum og persónum og fjallar um lífið í Hollywood, veröldina baktjaldamegin.

 

Stórleikarar á borð við Tim Robbins og Whoopi Goldberg leika í myndinni. Þessi mynd vakti töluverða athygli hér norður á klakanum því í henni var íslensk persóna, June Gudmundsdottir, sem Greta Scacchi… [Lesa meira]

Nan Madol, Feneyjar Kyrrahafsins

Nan Madol eru rústir fornar borgar á eyjunni Pohnpei í eyríkinu Míkrónesíu á Kyrrahafi. Borgin, sem líkist tökustað fyrir þáttaröðina Lost, var höfuðborg Saudeleur-veldisins þangað til um 1600 e. Kr.

 

Á þessu fagra og undarlega bæjarstæði byggðu Mikrónesar gríðarlega vandaða borg á tilbúnum eyjum með flóknu kerfi skurða. Nan Madol hefur verið uppnefnd „Feneyjar Kyrrahafsins“, en Nan Madol merkir „svæðið á… [Lesa meira]

Kort af Íslandi frá árinu 1590

Hér sjáum við kort af Íslandi frá síðasta áratugi 16. aldar, eftir flæmska landfræðinginn og kortagerðarmanninn Abraham Ortels. Eins og sést hefur sæskrímslum við strendur landsins eitthvað fækkað á síðastliðnum… [Lesa meira]

Hótel Borg árið 1930: Stórir sem smáir stilla sér upp

Starfsfólk á Hótel Borg árið 1930, þegar hótelið hóf starfsemi. Sirkuslistamaðurinn Jóhannes Jósefsson var stofnandi hótelsins en Lemúrinn hefur fjallað um skrautlegan feril hans nýlega. 

 

„Nýja gistihúsið, margumtalaða og langþráða, Hótel Borg, er nú tekið til starfa að nokkru leyti. Veitingasalir þess og samkvæmissalir voru fyrst notaðir 18. þ. m. og var þar dansleikur 300 manna og borðhald 180 manna… [Lesa meira]