Nina Simone á Listahátíð í Reykjavík

Bandaríska söngkonan Nina Simone var þegar orðin lifandi goðsögn þegar tilkynnt var að hún yrði gestur Listahátíðar í Reykjavík árið 1992. Eftirvæntingin fyrir tónleika hennar, sem fóru fram í Háskólabíói þann 4. júní, var því mikil. Það þarf vart að taka fram, að það var uppselt á tónleikana.

 

Nina virtist hin ánægðasta á meðan dvöl hennar stóð á Íslandi, sem var… [Lesa meira]

20. öldin var öld öfganna: Viðtal við breska sagnfræðinginn Eric Hobsbawm

Vídjó

Hér er magnað viðtal við breska sagnfræðinginn Eric Hobsbawm (1917-2012). Ævi hans var að mörgu leyti samofin atburðum hinnar öfgakenndu og dramatísku tuttugustu aldar.

 

Hann var af gyðingaættum, fæddur árið 1917 í Alexandríu í Egyptalandi á dögum breska heimsveldisins. Hann fluttist síðar til Þýskalands þar sem hann varð árið 1933 vitni að valdatöku Hitlers. Hobsbawm… [Lesa meira]

Íslensk tónlist í Norður-Kóreu: „Platan nánast hvergi til nema í Pyongyang“

Vídjó

Íslendingar á ferðalagi í Norður-Kóreu skruppu á bókasafn og fengu þar að heyra íslenska tóna á segulbandstæki. Morgunblaðið sagði frá þessu í fyrra. Heyra má í kassettutækinu hér fyrir ofan.

 

„Á almenningsbókasafninu í Pyongyang vippaði bókasafnskonan fram kassettu með íslenskri tónlist, harmonikkumúsík og íslenskum dægurlögum. Það var vægast sagt sprenghlægilegt,“ sögðu ferðalangarnir.

 

Og eins… [Lesa meira]

FBI ofsótti leikkonuna Jean Seberg

París, 10 september 1979. Lík bandarísku leikkonunnar Jean Seberg finnst vafið í teppi í skotti lítillar fólksbifreiðar. Seberg hafði horfið tíu dögum áður og skilið eftir sig bréf sem stílað var á son hennar. „Ég get ekki lifað lengur með taugunum mínum,” stóð í bréfinu. Seberg var 41 árs gömul.

 

Jean Dorothy Seberg, sem var af sænskum ættum, ólst upp í… [Lesa meira]

14. þáttur: Sorgarsögur framandi dýra á Íslandi

Þvotta­birnir hafa endrum og sinnum villst til Íslands. Í þau skipti vöktu þessi fram­andi dýr kátínu meðal Íslend­inga, en enda­lok þeirra urðu þó sorg­leg. Lemúrinn rifjar upp sorgarsögu þvottabjarnarins á Íslandi, og í leiðinni, svipaðar sorgarsögur annarra dýra sem álpuðust hingað til… [Lesa meira]

Kvikmyndin Predator í sex mínútna rappmyndbandi

http://www.dailymotion.com/video/x9vujx_the-predator-rap_music

Hér sjáum við söguþráð  kvikmyndarinnar Predator (1987) rakinn í sex mínútna rappmyndbandi með bresku hipphopp-sveitinni The… [Lesa meira]