Spænski furðufuglinn og listmálarinn Salvador Dalí horfir upp í myndavél með svokallaðri fisheye-linsu á meðan hann áritar bækur í bókabúð árið 1963. Mynd eftir Philippe… [Lesa meira]
Bréf Múmínmömmu til Íslendinga: „Firirgefa kvað ég stafa mykið vitlaust“
Þegar fyrsta bókin um Múmínálfana – Pípuhattur galdrakarlsins – kom út á íslensku, fylgdi henni bráðskemmtilegt bréf frá sjálfri Múmínmömmu. Bréfinu var beint til íslenskra barna. Steinunn Briem þýddi þetta meistaraverk Tove Jansson.
Elskuliga Islanzka Barn!
Þegar ég fá vita,… [Lesa meira]
Chewbacca birtir frábærar ljósmyndir sem teknar voru baktjaldamegin í Star Wars
Leikarinn Peter Mayhew lék hinn loðna vák Chewbacca í gömlu Stjörnustríðsmyndunum. Hann hefur verið duglegur að birta skemmtilegar myndir á Twitter sem teknar voru baksviðs við gerð myndanna. Ljósmyndirnar sýna ýmsar óvæntar hliðar. Við sjáum hvernig gamalkunnar senur voru kvikmyndaðar og hvernig stemningin var á… [Lesa meira]
Geimverur éta einræðisherra: The State of the Art eftir Iain M. Banks
Það að ímynda sér hvernig samfélag og siðir okkar mannanna litu út frá sjónarhóli geimvera, t.d. marsbúa, er algeng þankatilraun. Við tökum ýmsu sem gefnum hlut þó það gæti virst utanaðkomandi vitsmunaverum stórfurðulegt. Vísindaskáldsagnahöfundar hafa gert sér mat úr þess konar þankatilraunum og skrifað sögur þar sem lesandinn skoðar samfélag jarðarinnar frá öðrum sjónarhóli. Glöggt er gests augað.
Þekktust er kannski… [Lesa meira]
Ljósmyndirnar hennar: Brot úr lífi Fridu Kahlo
Mexíkóska listakonan Frida Kahlo átti litríka ævi. Hún málaði ódauðleg listaverk, átti í stormasömu hjónabandi með Diego Rivera, þekktasta málara landsins, en lenti líka í skelfilegum veikindum og áföllum.
MOLAA, Museum of Latin American Art í Kaliforníu er nú með til sýninga ýmsar ljósmyndir frá æviskeiði Fridu. Sumar eru klipptar úr fjölskyldualbúmum. Sýningin nefnist einfaldlega Myndirnar hennar en alls eru… [Lesa meira]
Hollensk kona mynduð með byssu á hverju ári í 74 ár
Hollensk kona hefur skotið á skotskífur á útimörkuðum á hverju ári frá því hún var 16 ára árið 1936. Í hvert skipti sem hún hittir í mark tekur sjálfvirk myndavél ljósmynd af henni. Því eru til myndir af konunni á öllum æviskeiðum hennar í sömu stellingum.
Ria van Dijk stendur grafkyrr og einbeitt. Hún tekur í gikkinn og skýtur. Hún hittir… [Lesa meira]
