Gunhild Augusta Thorsteinsson fæddist á Ísafirði 15. júlí 1878. Hún sigldi árið 1899 til Kaupmannahafnar þar sem hún nam ljósmyndun.
Gunhild Thorsteinsson ásamt Helgu Johnson, samstarfskonu sinni á ljósmyndastofunni á Hverfisgötu.
Gunhild stofnaði ljósmyndastofu við Hverfisgötu 4 (nú 34) í Reykjavík og rak hana til 1911 ásamt Helgu Johnson. „Húsið á Hverfisgötunni var byggt sérstaklega fyrir starfsemina, það var með stærri gluggum en almennt var á húsum, en á þessum árum var ekkert rafmagn og lítið um gerfiljós svo dagsbirtan gaf helst það ljós sem ljósmyndarar unnu við,“ segir í umfjöllun um Gunhild í blaðinu NT í nóvember 1984. Þar kemur fram að hún hafi unnið með stóra harmónikkuvél.
Gunhild var helst þekkt fyrir póstkortagerð, eins og kemur fram á vef Þjóðminjasafnsins: „Gunhild Thorsteinsson ljósmyndari rak portrettljósmyndastofu í til þess byggðu húsi við Hverfisgötu í Reykjavík í byrjun 20. aldar. Samhliða ferðaðist hún um landið og tók myndir gjarnan frá sjó úr strandferðaskipum af þéttbýlisstöðum. Auk þess leitaði hún uppi vinsæla ferðamannastaði landsins og gaf út póstkort með myndum af þeim. Póstkort hennar voru m.a. prentuð í Greifswald í Þýskalandi og virðast öll vera framleidd í Þýskalandi.“
Auglýsing í Ísafold, október 1908.
Eftir 1911 vann Gunhild til dæmis við heildsölu á erlendum legsteinum. Hún lést 1948. Þjóðminjasafnið geymir hluta af ljósmyndasafni hennar. (via sarpur.is)
Hundar. 1902-1911.
Köttur og kettlingar. 1902-1911.
Hestur. 1902-1911.
Hjálmar Bjarnason umkringdur leikföngum sínum. 1902-1911.
Barn.
Hjálmar og Gunnar Bjarnasynir baða sig á Suðurgötu 5. 1902-1911.
„Reykjavík. Suðurgata 5. Einlyft timburhús með risi klætt með standandi klæðningu og með áföstu stóru ljóskeri. Framan við húsið er fólk á stórum sleða sem dreginn er af hesti og í baksýn stendur fólk við húsið. Nicoalj Bjarnason og Anna Emelia Thorsteinsson á tröppunum. Líklega Þorsteinn sonur þeirra við húsið og Hjálmar, Johanna Petra og Gunnar á sleðanum. “
Grímsey stuttu eftir 1905.
Strákar á hestbaki.
Þjóðminjasafnið: „Gríðarlega stórt sorfið grjót. Tveir drengir sitja í holum í berginu. Gunnar og Hjálmar, synir Nicolai Bjarnasonar og Önnu Emeliu Thorsteinsson [sem sjást á fleiri myndum hér]. Þetta bjarg mun hafa verið í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi.“
Reykjavík árið 1904. Fræðimenn hafa þurft að rannsaka húsin á myndinni til að tímasetja hana. Þjóðminjasafnið: „Myndina má tímasetja vegna byggingar á turni við hús við Amtmannsstíg til ársins 1904.“
Dómkirkjan, Pósthússtræti, Austurstræti og næsta umhverfi árið 1904.
Hafnarstræti 1904.
„Kona“
Þjóðminjasafnið: „Læknir í hvítum slopp með áhald í hendi framkvæmir einhvers konar aðgerð á konu sem liggur á upphækkuðum bekk með yfirbreiðslu yfir sér að neðan. Hjúkrunarkona eða aðstoðarkona stendur hjá og heldur á bakka og vaskafati. Matthías Einarsson læknir.“
17. júní 1911 var haldið upp á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar um allt land. Gunhild var stödd í miðbæ Reykjavíkur og tók nokkrar merkilegar ljósmyndir.
Stúlkurnar í vagninum selja merki á vegum Kvenfélagsins Hringsins til ágóða fyrir spítalabyggingu.
Tjarnargata. Skrúðganga fólks sem er hugsanlega að koma frá íþróttamóti á Melavelli, þennan dag, 17. júní 1911.
Horn Tjarnargötu og Vonarstrætis 17. júní 1911. Skrúðgangan að nálgast Austurvöll.
Fylkingin gengur eftir Kirkjustræti.
Forsíða Vísis 17. júní 1911.
Myndir úr ýmsum áttum:
Þingvellir.
Tjörnin.
Fermingarstúlka.
Tjarnargata.
Tjarnargata.
Stykkishólmur.
Fiskþvottur. Myndin er hugsanlega tekin á Bíldudal.
Póstkort eftir Gunhild: