Lemúrinn fer yfir sögu Tyrkjaránsins og gluggar í ferðasögu séra Ólafs Elíassonar sem sigldi alla leið til Algeirsborgar með sjóræningjunum, og skoðar hugmyndir hollensks listamanns um að meðalhæð mannkynsins verði lækkuð niður í 50 cm til að plánetan nýtist betur. Þá er lesið úr gamalli íslenskri kennslubók í landafræði þar sem birtast mjög úreltar hugmyndir um… [Lesa meira]
Hið dularfulla Frísland: Var stór eyja við hlið Íslands?
Ítalskt kort frá sextándu öld sýnir stærðar eyju skammt fyrir sunnan Ísland, sem merkt var Frísland. Það var upphafið að löngum misskilningi kortagerðarmanna víða um Evrópu. Nær öll landakort frá 1560-1660 sýna eyjuna, sem var auðvitað ekki til.
Ítalinn Nicolo Zeno sagðist hafa fundið landakort í Feneyjum og gaf það út undir eigin nafni árið 1558 (sjá að ofan). Zeno sagði… [Lesa meira]
Lokaatriðið í Blade Runner er í raun upphafsatriðið í The Shining
Dystópíska vísindaskáldskaparmyndin Blade Runner frá árinu 1982 á sér í dag dyggan aðdáendahóp, en hún er oft talin meðal svokallaðra ‘költ’-mynda. Myndin er byggð á skáldsögu Philip K. Dick, Do Androids Dream of Electric Sheep?, og er stórmerkileg að mörgu leyti, en hún veltir upp bæði heimspekilegum og siðferðislegum spurningum um það hvað það þýðir að vera mennskur. Myndin sjálf… [Lesa meira]
Brugðið á leik á bakvið tjöldin í The Shining
The Shining er ein magnaðasta hryllingsmynd allra tíma. Fyrir það fyrsta þá er hún byggð á sögu eftir hrollvekjumeistarann Stephen King (sem reyndar var ekkert sérstaklega ánægður með útkomuna) en það sem hún hefur fram yfir allar aðrar hryllingsmyndir er að leikstjóri myndarinnar var einhver rómaðasti leikstjóri sögunnar, fullkomnunarsinninn Stanley Kubrick.
Shining er miklu meira heldur en hryllingsmynd. Í meðförum Kubrick… [Lesa meira]
Moondog: Tónskáld, uppfinningamaður og norrænt goð (eða víkingurinn á sjötta breiðstræti)
Þeir sem hlusta á menningarþáttinn Víðsjá á Rás 1 ættu að kannast við lagið A Birds Lament, en það hefur verið notað sem inngangsstef þáttarins í nokkur ár. Þetta djassskotna verk var samið af tónskáldinu Moondog. Óhætt er að segja að hann hafi að mörgu leyti verið kynlegur… [Lesa meira]
Ónýtir puttar og Black Sabbath: Þungarokkið fæddist eftir blóðugt vinnuslys
Þetta er mögnuð saga. Spennið beltin! [Gítarsóló]
Árið er 1965. Við erum stödd í Birmingham á Englandi. Gefum okkur að það sé rigningarsuddi og fremur grámyglulegt um að litast. Hinn 17 ára Tony Iommi er mættur til vinnu sinnar í stálverksmiðjunni þar sem hann vinnur við að rafsjóða saman pressaðar stálplötur.
Tony þessi þykir nokkuð efnilegur gítarleikari og hefur verið að gæla… [Lesa meira]