7. þáttur: Pelé á Íslandi og Albert Guðmundsson í Brasilíu

Vegna þáttöku Íslands í umspili fyrir heimsmeistarakeppnina í fótbolta í Brasilíu á næsta ári fjallar Lemúrinn um ýmsa atburði sem tengir knattspyrnusögur Íslands og Brasilíu saman. Sagt er frá því þegar svarta perlan, Pelé, besti knattspyrnumaður sögunnar, kom til Íslands árið 1991. Einnig er fjallað um þegar hvíta perlan, Albert Guðmundsson, ferðaðist með enska liðinu Arsenal til Brasilíu árið… [Lesa meira]

Ans ans: Skemmtilegur spurningaþáttur fjölmiðlamanna árið 1987

Hraði og spenna voru einkunnarorð spurningaleiksins Ans ans á Stöð 2 árið 1987. Þar mættist fjölmiðlafólk í æsispennandi leik. Hljóð og mynd í þessum þætti er mjög skemmtilegt. Magnús Egilsson sá um hljóð í þættinum. Vel gert hjá honum. Umsjónarmenn voru Guðný Halldórsdóttir og Halldór Þorgeirsson, spyrlar Óskar Magnússon og Agnes Johansen. Nú hefur einhver hlaðið þáttunum upp á YouTube, sem… [Lesa meira]

„Á bakvið tjöld framtíðarinnar“: Heimildarmynd um gerð 2001

Vídjó

Undir lok sjöunda áratugarins fylgdist heimsbyggðin með ótrúlegum afrekum geimvísindamanna þegar þeim tókst að skjóta geimförum alla leið til tunglsins. Á sama tíma kom út frábær kvikmynd eftir Stanley Kubrick sem hann gerði í samstarfi við vísindaskáldsöguhöfundinn Arthur C. Clarke. 2001: A Space Odyssey var tímamótamynd á óteljandi vegu. Myndin hafði óendanlega mikil… [Lesa meira]

Snjallir stjörnustælar: Ekkert brúnt M&M fyrir okkur, takk

Flestir rokkunnendur hafa eflaust einhvern tíman heyrt sögur af rokkhljómsveit sem var svo illa haldin af stjörnustælum að hún gerði kröfu um að baksviðs yrði boðið upp á sælgætistegundina M&M þar sem búið væri að flokka öll brún M&M frá og henda þeim. Sumir gætu haldið að þetta væri bara flökkusaga, en í raun er þetta ekkert svo galin krafa… [Lesa meira]

Sierra Nevada og hvernig Jimmy Carter bjargaði bjórnum í Bandaríkjunum

Þrátt fyrir að jarðhnetubóndinn Jimmy Carter hafi ekki verið sérstaklega vinsæll sem forseti Bandaríkjanna  á meðan hann gegndi embættinu, hefur sagan leitt í ljós að hann er líklega einn sá skásti sem hefur setið í Hvíta húsinu.

 

Lemúrinn hefur til að mynda fjallað um áhuga Carters á sjálfbærri orkunýtingu. Síðan hann lét af embætti hefur hann verið óhræddur að ferðast… [Lesa meira]

Besta slagorð auglýsingasögunnar frá mesta drykkjumanni Írlands

Þeir sem hafa flett erlendum tímaritum eða horft á erlendar sjónvarpsstöðvar hafa áreiðanlega rekist á auglýsingar frá írska bjórframleiðandanum Guinness. Auglýsingar fyrirtækisins eiga til að verða eftirminnilegar, þá ekki síst slagorð Guinness. Mörg þeirra eftirminnilegustu má rekja til fjórða og fimmta áratugar síðustu aldar og var það enska auglýsingastofan S. H. Benson sem á heiðurinn af þeim.

 

Meðal þekktra slagorða má… [Lesa meira]