Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.

„Tvíhleypt haglabyssa sem er sko ekki hlaðin með sófapúðum“

“Óviðkomandi verða sóttir til saka af 2 blendingshundum sem voru aldrei sérstaklega hrifnir af ókunnugum & 1 tvíhleyptri haglabyssu sem er sko ekki hlaðin með sófapúðum. Andskotinn ef ég er ekki orðinn þreyttur á þessum bölvaða umgangi um landið mitt”

 

Ljósmynd sem tekin var um aldamótin 1900 af skilti við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Landeigandinn B. Griscom hótar óvelkomnum öllu illu.

 

Smellið… [Lesa meira]

Fimmtán ára hermaður grætur

Hans-Georg Henke, fimmtán ára liðsmaður í þýska hernum, grætur eftir að herdeild hans var gripin af Bandamönnum, 1. maí 1945. Undir lok seinni heimsstyrjaldar, þegar gangur stríðsins snérist Þýskalandi í óhag, notaðist þýski herinn í auknum mæli við barnunga… [Lesa meira]

Skíðaaktivistinn Eva Nansen

Þessi ljósmynd var tekin árið 1889 í skíðabrekku í Noregi. Á þeim tíma þótti ekki við hæfi að konur renndu sér á skíðum, en sú sem við sjáum hér lét ekki stöðva sig. Hún hét Eva Sars og var ein nafntogaðasta kvenréttindakona Noregs á sinni tíð vegna baráttunnar fyrir að konur fengju að stunda vetraríþróttir.

 

Norðmaðurinn Friðþjófur Nansen öðlaðist heimsfrægð um… [Lesa meira]

Minnismerki í Bosníu

Í stjórnartíð Tító voru ýmis minnismerki reist um alla Júgóslavíu til minningar um fórnarlömb þar í landi í síðari heimsstyrjöldinni og skæruliðana sem börðust á móti nasistum. Hér á þessari mynd, sem lítur út eins og plötuumslag hjá framsækinni hljómsveit, er eitt þessara listaverka en það var reist á sjöunda áratugnum nálægt bænum Tjeniste í Bosníu.

via… [Lesa meira]

Inúítar í kirkju árið 1902

Inúítar í kirkjunni í Kuujjuaraapik í Nunavik í Kanada árið… [Lesa meira]

Jemenskur rabbíni í Jerúsalem

Jemenski rabbíninn Abram Ajwar les í bók. Jerúsalem, síðari hluti fjórða áratugar 20.… [Lesa meira]

Skrifstofa Einsteins

Albert Einstein var fæddur 14. mars 1879 í Ulm í Þýskalandi, fyrir 133 árum síðan í dag. Hér sjáum við skrifstofu hans í Princeton í New Jersey. Ljósmyndin var tekin hinn 18. apríl 1955, daginn sem eðlisfræðingurinn lést 76 ára… [Lesa meira]

Vesúvíus gýs árið 1944

Hér sjáum við ljósmynd af gosi í ítalska eldfjallinu Vesúvíusi árið 1944. Eldfjallið hefur ekki gosið síðan þá.

 

Hér er áhugaverð lýsing vísindamannsins Þorvalds Thoroddsen á Vesúvíusi frá 1885. Eldfjallafræðingurinn Haraldur Sigurðsson skrifaði einnig bráðskemmtilega grein um… [Lesa meira]

Loftskipið Hindenburg í smíðum

Loftskipið LZ 129 Hindenburg í smíðum í Friedrichshafen í Þýskalandi nasismans árið 1935. Það var nefnt í höfuðið á Paul von Hindenburg, forseta Þýskalands. Skipið, sem var það stærsta sinnar tegundar, fórst 14 mánuðum eftir jómfrúarferð sína í skelfilegu slysi í Lakehurst í New Jersey í maí 1937. Sá atburður markaði endalok loftskipabransans.

 

 

… [Lesa meira]

Pútín og Bush horfa á sólina setjast

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og George Walker Bush, forseti Bandaríkjanna, fylgjast með undurfögru sólsetri á bryggju við Svartahaf í apríl 2008. Bush heimsótti Pútín í sumarbústað Rússlandsforseta í Bocharov Ruchey í Sochi. Eric Draper, ljósmyndari hjá Hvíta húsinu, tók… [Lesa meira]

Hjón frá Múla í Færeyjum árið 1940

Gömlu hjónin í Múla, Joen Frederik Olsen (f. 1870) og Else Olsen (f. 1871).  Ljósmyndin var tekin árið 1940.

 

Múli á Borðey í Færeyjum „var ein afskekktasta byggð Færeyja og þangað var ekkert vegasamband fyrr en 1989 og allir flutningar voru með bátum og þyrlum. Byggðin fór svo í eyði 1994, fimm árum eftir að vegur var lagður þangað,“ segir í grein… [Lesa meira]

Hús fógetans, Reykjavík um 1900

Hús bæjarfógetans í Reykjavík.

 

Vita glöggir lesendur hvar við erum stödd á þessari mynd?

 

Hana tók breski ljós­mynd­ar­inn Frederick W.W. Howell, sem ferð­að­ist til Íslands og Færeyja um alda­mótin 1900. (Cornell University Library.)

 

UPPFÆRT:

Andrés Magnússon leysti gátuna um hús bæjarfógetans í Reykjavík:

„Flest húsanna eru horfin eða svo breytt að þau þekkjast vart lengur. Ekki öll þó. Hornið á Austurstræti og Veltusundi er vel… [Lesa meira]