Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.

Snoturt lamadýr í Bólivíu

Þetta glaðlega lamadýr stillti sér upp fyrir framan ljósmyndara við saltsléttuna í Salar de Uyuni í Bólivíu fyrir um tveimur árum.

 

Allt bendir til að lamadýrin hafi orðið til á miðsléttum Norður-Ameríku fyrir um 40 milljónum ára. Þau fóru að fara til Suður-Ameríku fyrir um þremur milljónum ára. En mörg þúsund ár hafa liðið frá því að lamadýrin urðu útdauð í… [Lesa meira]

Tveir úgandskir hermenn

Tveir hermenn stilla sér upp við vegarkant í Kampala, höfuðborg Úganda, árið 1936. (Library of Congress.)

 

Bretland gerði landsvæðið Úganda að nýlendu sinni árið 1888. Bretar stjórnuðu þar fyrst undir merkjum Breska Austur-Afríkufélagsins, og gerðu landið svo að ‘verndarríki’ bresku krúnunnar árið 1894. Landið fékk sjálfstæði árið… [Lesa meira]

Svíi í Tíbet

Sænski landkönnuðurinn Sven Hedin meðal innfæddra í Tíbet, 1907.

 

Hedin (1865-1952) fór í fjölmarga langa leiðangra um Asíu, kortlagði stór landsvæði fyrstur manna og gerði fleiri merkar uppgötvanir. Hann var einnig mikill vinur Adolfs… [Lesa meira]

Ósæmilegu baðfötin, Holland 1931

Þessi maður var sektaður fyrir að bera sig of mikið, sýna nekt á almannafæri og misbjóða almennu velsæmi, á strandstað í Hollandi árið 1931. (Nationaalarchief)

 

Minnir á þetta: Handteknar fyrir að sýna… [Lesa meira]

Prófessor selur póstkort í kreppu

“Heimagerð póstkort eftir Prófessor R. Metz” Fátækur prófessor selur póstkort úti á götu í Berlín, árið 1930.

 

Heimskreppan mikla olli Þýskalandi enn meiri vandræðum, þegar landið var aðeins nýlega búið að ná sér upp úr óðaverðbólgu. Þremur árum eftir að þessi mynd var tekin var Adolf Hitler orðinn kanslari. (Nationaal… [Lesa meira]

Ho Chi Minh og þýsku sjóliðarnir

Byltingarleiðtoginn og forseti Norður-Víetnam, Ho Chi Minh, stillir sér upp með sjóliðum úr austurþýska flotanum á opinberri heimsókn sinni til Austur-Þýskalands árið 1957.… [Lesa meira]

Sænskur maður árið 1933

Karl Oskar Lööw frá Fredhäll í Upplandi í Svíþjóð. Hann var fæddur árið 1873. Myndina tók Einar Erici árið 1933.… [Lesa meira]

Höfuðið í garðinum

Höfuð Frelsisstyttunnar í almenningsgarði í París árið 1883. Styttuna hannaði franski myndhöggvarinn Frédéric Bartholdi en hún var gjöf frönsku þjóðarinnar til þeirrar… [Lesa meira]

Barnungir fangar í þrælkunarvinnu í Bandaríkjunum árið 1903

Þessir kornungu strákar – sem allir eru bundnir með keðjum á þessari mynd – voru fangar í Michigan-fylki í Bandaríkjunum árið 1903. Allir voru af afrísku bergi brotnir. Ömmur þeirra og afar og hugsanlega foreldrarnir líka upplifðu tíma þrælahaldsins í Bandaríkjunum en þessir fá sinn skerf líka. (Library of Congress/Wikimedia Commons)

 

[Lesa meira]

Ferðamaður í Angkor Thom

Hér sjáum við póstkort frá Frönsku-Indókína, ferðamaður í Angkor Thom í Kambódíu við gríðarstórt Búddalíkneski. Líklega frá um 1900.… [Lesa meira]

Íranskur byltingarmaður

Yeprem Khan (1868-1912), armenskur þjóðernissinni og einn af leiðtogum stjórnarskrárbyltingarinnar í Íran… [Lesa meira]

Á sjóskíðum í Flórída árið 1957

Hér sjáum við stúlkur á sjóskíðum í skemmtigarðinum Cypress Gardens í Flórídafylki í Bandaríkjunum árið 1957. Íþróttin var mikið stunduð af fólki af öllum aldri í skemmtigarðinum en hann markaði upphafið að sumarleyfis- og frístundaiðnaði fylkisins.

 

Sjötti áratugurinn var áhugaverður tími í Bandaríkjunum og heiminum öllum. Þegar þessar myndir voru teknar var rúmur áratugur liðinn frá hinni ömurlegu síðari heimsstyrjöld. Bjartsýni… [Lesa meira]