Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.

Flóttabörn og hafið, 1915

Armenskir munaðarleysingjar sjá hafið í fyrsta sinn í Maraþon í Grikklandi, árið 1915.

 

Myndina tók starfsmaður bandarísku hjálparsamtakanna American Committee for Armenian and Syrian Relief. Samtökin björguðu fjölmörgum armenskum og assýrískum flóttamönnum undan þjóðarmorði Tyrkja í og eftir fyrri heimsstyrjöld. (Library of… [Lesa meira]

Þegar rafmagnið kom til Rússlands, 1925

Eitt af fyrstu stórframkvæmdum hinna nýstofnuðu Sovétríkja í byrjun þriðja áratugarins var að rafvæða alla landsins kima. Því eins og Lenín sjálfur sagði, “Kommúnisminn er vald Sovétanna plús rafvæðing alls landsins”.

 

Ljósmyndarinn Arkadí Sjaíket tók þessa mynd af gömlum bændahjónum og nýrri ljósaperu árið… [Lesa meira]

Hermenn hlaupa á flugmóðurskipi í Hvalfirði

Breskir hermenn keppa í spretthlaupi um borð í flugmóðurskipi í Hvalfirði. Mynd dagsins á síðu breska herminjasafnsins í Lundúnum, Imperial War… [Lesa meira]

Finnski forsetinn prílar í pálmatré

Urho Kekkonen, forseti Finnlands, klifrar í pálmatré í Túnis árið 1965. Ljósmyndari Kalle Kultala.

 

 

… [Lesa meira]

Lenín, systkini og köttur

Vladimir Lenín með eiginkonu sinni og systkinum, og ketti, í íbúð sinni í Kreml. Haustið 1920.

 

Neðri röð: Lenín, Krúpskaja, Anna Jelízarova-Úljanova (1864-1935).

 

Efri röð: María Úljanova (1878-1937), Dmitrí Úljanoff (1874-1943), köttur, Georgí Lozgatsjoff (1906-1972, ættleiddur sonur Önnu).

 

Á myndina vantar Sergei Úljanoff, tvíburabróður Leníns, en Lemúrinn hefur áður gert viðburðaríkri ævi hans góð… [Lesa meira]

Bygging fasistaflokksins í Róm, 1934

Bygging ítalska fasistaflokksins sem Benito Mussolini stofnaði, Partito Nazionale Fascista, í Róm árið… [Lesa meira]

Drykkjumenn í Leníngrad, 1931

Hópur manna fyrir utan verslun á Nevsky prospekt, aðalgötu í Leníngrad eða Pétursborg í Rússlandi, árið 1931.

 

Handlituð skyggna eftir Bandaríkjamanninn Branson DeCou, sem hélt vinsæla fyrirlestra fyrir landa sína með skyggnumyndum frá ferðum sínum í Evrópu. (UC Santa Cruz… [Lesa meira]

Silfurbergsnáman á Helgustöðum

Silfurbergsnáman á Helgustöðum í Reyðarfirði. Mynd úr kortasafni Jóns Halldórssonar. Óljóst er hvenær myndin er tekin, en líklega var það snemma á tuttugustu öld. Vísindavefurinn:

 

“Íslandít” er bergtegund, járnríkt andesít. Nafnið bjó til breski jarðfræðingurinn Ian Carmichael, sem síðar varð prófessor í Berkeley í Kaliforníu, þegar hann vann að doktorsritgerð sinni um tertíeru Þingmúla-eldstöðina í Skriðdal kringum 1960.

 

Í bergsyrpum megineldstöðva meginlandanna… [Lesa meira]

Franz Liszt í mars 1886

Ungverska tónskáldið Franz Liszt. Gaspard-Félix Tournachon tók myndina árið 1886. Árið síðar lést Liszt og Skírnir birti eftirfarandi minningarorð um meistarann:

 

Laugardagsnótt 31. júlí andaðist Franz Liszt , að næstum allra manna dómi líkast til hinn mesti tónlistarmeistari, sem sögur hafa af gerzt.

 

Tólf vetra gamall gisti hann Beethoven, tónaskáldið fræga og ljek svo fyrir honum nótnalaust (á «klaver») hans andríkustu og… [Lesa meira]

Eldvarpa í engisprettuplágu, 1915

Bændur í Palestínu nota frumstæða eldvörpu til þess að ráða niðurlögum engispretta. Mikil engisprettuplága gekk yfir Palestínu sumarið 1915. Engispretturnar eyðilögðu þá nærri allan gróður og ollu hungursneyð og farsjúkdómum.

 

Ræðismaður Bandaríkjanna í Palestínu lýsti plágunni svo við New York Times: “Komu engisprettanna væri best lýst sem innrás. Eins langt og augað eygði voru akrarnir þaktir engisprettum, og jafnvel gatan fyrir framan… [Lesa meira]

Stalín í Potsdam árið 1945

Stalín, fundarborð, öskubakkar.

 

Leiðtogar sigurveldanna í síðari heimsstyrjöldinni hittust á hinni svokölluðu Potsdam-ráðstefnu 17. júlí til 2. ágúst 1945. Það voru Harry S. Truman frá Bandaríkjunum, Jósef Stalín frá Sovétríkjunum og Winston Churchill frá Bretlandi. Á þessum tíma fóru fram kosningar í Bretlandi og missti Churchill forsætisráðherraembætti sitt. Því fór svo að Clement Attlee við af honum í miðri ráðstefnunni.

 

Leiðtogarnir gáfu… [Lesa meira]

Fiskverkun á Eskifirði, um 1900

Íslenskar og færeyskar stúlkur verka fisk á Eskifirði, í kring um áramótin 1900.

 

Myndina tók breski ljós­mynd­ar­inn Frederick W.W. Howell, sem ferð­að­ist til Íslands og Færeyja um alda­mótin 1900. (Cornell University… [Lesa meira]