Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.

Íslenskir tvíburar með stráhatta, um 1910

Tvíburarnir Helgi og Kristján Zoëga, fæddir 1905, sátu fyrir á ljósmynd Magnúsar Ólafssonar um 1910. (Ljósmyndasafn… [Lesa meira]

Nasistafáni á Akureyri, um 1938

Nasistafáni blaktir við hús Sigurðar Hlíðar, ræðismanns Þjóðverja á Akureyri, Lækjargötu 3, árið 1938 eða 1939.

 

Myndina tók Eðvarð Sigurgeirsson ljósmyndari, en Morgunblaðið birti í fyrra frábærar myndir hans af Akureyri á fyrri hluta tuttugustu… [Lesa meira]

Skaparinn og hugsuðurinn

Franski myndhöggvarinn Auguste Rodin og verk hans Hugsuðurinn. Ljósmyndina tók Edward Steichen árið… [Lesa meira]

Búðir á Snæfellsnesi, um 1900

Hér sjáum við Búðir á Snæfellsnesi um aldamótin 1900. Myndirnar tók breski ljós­mynd­ar­inn Frederick W.W. Howell, sem ferð­að­ist til Íslands og Færeyja (Cornell University Library). Smellið á myndirnar til að sjá þær… [Lesa meira]

George Orwell í spænsku borgarastyrjöldinni

Hávaxni maðurinn á miðri myndinni er rithöfundurinn George Orwell, en mynd þessi var tekin á meðan Orwell var hluti af alþjóðlegri sjálfboðaliðadeild repúblíkana í spænsku borgarastyrjöldinni á árunum 1936-1937. Orwell barðist þar gegn fasistunum í Aragóníu á Norður-Spáni og var að lokum skotinn gegnum hálsinn af leyniskyttu. Heppnin lék þó með honum, og hann rétt svo lifði það af  — hálfum sentimentra… [Lesa meira]

Fólkið á Holti á Síðu, um 1900

Fólkið á Holti á Síðu í Vestur-Skaftafellssýslu um 1900.

 

Myndina tók breski ljós­mynd­ar­inn Frederick W.W. Howell, sem ferð­að­ist til Íslands og Færeyja (Cornell University Library).

 

Howell var mikið á Íslandi á síð­asta áratug nítj­ándu aldar og starf­aði meðal ann­ars sem leið­sögu­maður fyrir erlenda ferða­langa. Hann gekk á Hvannadalshnúk árið 1891, hugs­an­lega fyrstur manna, og fór yfir Langjökul þveran 1899. En Howell drukkn­aði í… [Lesa meira]

Gangvegurinn í Atlantic City 1904

Einhverjir lesendur Lemúrsins þekkja vafalaust sjónvarpsþætti leikstjórans Martins Scorsese, Boardwalk Empire, sem fjalla um skipulagða glæpastarfsemi í bandarísku strandborginni Atlantic City í New Jersey í Bandaríkjunum á 3. áratug síðustu aldar.

 

Hér að ofan sjáum við umrætt “boardwalk” í Atlantic city árið 1904, en þá var borgin 50 ára gömul og hafði um 32 þúsund íbúa, sem var u.þ.b. fjórum sinnum… [Lesa meira]

Valentina Tereshkova og Neil Armstrong

Valentina Tereshkova, fyrsta konan sem fór út í geim, og Neil Armstrong, fyrsti tunglfarinn, árið… [Lesa meira]

Fiskvinnslukonur vaska saltfisk, um 1910

Magnús Ólafsson tók þessa mynd af fiskvinnslukonum á árunum 1910-1920. Þetta er líklega í húsi Milljónafélagsins á Kirkjusandi, segir Ljósmyndasafn Reykjavíkur, sem geymir þessa mynd. Smellið á myndina til að sjá hana… [Lesa meira]

Iðnsýning í Barnaskólanum, 1911

Ljósmyndasafn Reykjavíkur geymir þessa ljósmynd Magnúsar Ólafssonar af tveimur konum á iðnsýningu í Barnaskólanum í Reykjavík árið… [Lesa meira]

Einstein, Tesla og félagar árið 1921

Vísindamennirnir Sarnoff, Thomas J. Hayden, Ernst Julius Berg, S. Benedict, Albert Einstein, Nikola Tesla, Charles Proteus Steinmetz, A.N. Goldsmith, A. Malsin, Irving Langmuir, Albert W. Hull, E.B. Pillsbury, Saul Dushman, [Lesa meira]

Guðmundur Thorsteinsson, Muggur, um 1910

Frábær ljósmynd Magnúsar Ólafssonar sýnir listamanninn Mugg einhvern tímann á árunum 1910-1920 þegar hann var á þrítugsaldri. (Ljósmyndasafn Reykjavíkur)

 

Hér er hægt að skoða nokkur verk eftir þennan merkilega íslenska listamann sem dó langt fyrir aldur fram árið… [Lesa meira]