Til vinstri sést ungur og myndarlegur Richard Nixon í bandarískum fótboltabúningi. Til hægri sést gamall og hataður Richard Nixon, forseti… [Lesa meira]
Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.
Trinity Church, New York, 1910
Trinity Church er merkileg kirkja því hún var byggð á Manhattan löngu áður en gríðarlega háir skýjakljúfar eyjunnar voru reistir. Menn vilja ekki rífa kirkjuna og nú stendur hún eins og mús við rætur þeirra. Hér sjáum við glæsilega ljósmynd af kirkjunni frá um… [Lesa meira]
Taft og buffallinn
Óheppinn vatnabuffall á Filipseyjum burðaðist með William Howard Taft árið 1904. Taft var ríkisstjóri á eyjunum í kringum aldamótin 1900, en hann gegndi frá 1909 til 1913 embætti forseta Bandaríkjanna. Hann var þyngsti Bandaríkjaforseti sögunnar. Taft lenti eitt sinn í óþægilegri krísu þegar hann festist í baðkari í Hvíta húsinu en aðstoðarmenn hans náðu honum út með því að maka… [Lesa meira]
New York árið 1943
Torgið Times Square á Manhattan í New York-borg á árum síðari heimsstyrjaldarinnar (lituð ljósmynd). Ljósmyndari: John Vachon (Office of War Information). Myndin fyrir neðan sýnir sama torg í nútímanum.
Drekkingarhylur, 1900
Drekkingarhylur, Brennugjá, Höggstokkseyri og Gálgaklettar eru örnefni á gamla alþingisstaðnum á Þingvöllum. Það voru allt aftökustaðir og af þeim er Drekkingarhylur í Almannagjá líklega þekktastur. 18 konum var drekkt í honum, fyrir meint skírlífsbrot og „hórdóm“.
Á Þingvöllum voru með nærfellt fullri vissu 72 menn (karlar og konur) teknir af lífi að undangengnum dómum. Þar af 30 hálshöggnir, 15… [Lesa meira]
Kirkjan á Stórólfshvoli, 1900
Hér sjáum við flottar ljósmyndir af kirkjunni og altaristöflu hennar á Stórólfshvoli við Hvolsvöll um aldamótin 1900. Vefur Rangárþings eystra segir frá Stórólfshvoli:
Á Stórólfshvoli átti Stórólfur, sonur Ketils hængs, að hafa búið til forna. Sonur hans Ormur var hetja mikil og segir frá honum í Orms þætti Stórólfssonar. Þátturinn greinir frá hinum ýmsu þrekvirkjum Orms, meðal annars… [Lesa meira]
Forsætisráðherrann og prinsinn, 1919
Ljósmynd frá 1919 sýnir David Lloyd George, forsætisráðherra Bretlands, og Játvarð, krónprins. Játvarður var Englandskonungur í tæpt ár árið 1936 en afsalaði sér krúnunni vegna ástarsambands við Wallis Simpson. Vísir flutti fregnir af þessum atburði í desember árið 1936 og birti ræðu konungs í íslenskri þýðingu. Játvarður sagði eftirfarandi:
Eftir langa og samviskusamlega íhugun, hefi eg ráðið við mig að… [Lesa meira]
Stúlkur í Kákasus, 1890
Rússneski ljósmyndarinn Dmitri Ivanovich Yermakov tók þessa mynd af stúlkum af þjóðarbrotinu Abazin í Kákasus um 1890. Abazinar búa til dæmis í rússnesku sjálfstjórnarlýðveldunum Adygeu og Karachay-Cherkessíu, en margir þeirra búa innan vébanda Tyrklands og annarra nálægra landa.
Á Vísindavefnum er hægt að lesa fróðlega grein um Kákasus-lönd… [Lesa meira]
Winston Churchill með Thompson hríðskotabyssu
Hér að ofan sést Winston Churchill, forsætisráðherra Bretlands, að skjóta Thompson hríðskotabyssu, eða “Tommy Gun”, þann 31. júlí 1940.
Að neðan sjást fleiri myndir af Churchill með byssu. Honum við hlið stendur lífvörður hans, Walter H. Thompson. Thompson byssan var þó ekki nefnd eftir honum, heldur ættarnafna hans, bandaríska hugvitsmanninum John T. Thompson, sem hannaði byssuna áríð 1921.
Þórsmörk og Eyjafjallajökull, um 1900
Ævintýraleg sena frá Þórsmörk. Ljósmynd frá lokum nítjándu aldar.
Myndina tók breski ljósmyndarinn Frederick W.W. Howell, sem ferðaðist til Íslands og Færeyja um aldamótin 1900. (Cornell University Library.)
Howell var mikið á Íslandi á síðasta áratug nítjándu aldar og starfaði meðal annars sem leiðsögumaður fyrir erlenda ferðalanga. Hann gekk á Hvannadalshnúk árið 1891, hugsanlega fyrstur manna, og fór yfir Langjökul þveran 1899. En… [Lesa meira]
Eyjafjarðará, um 1900
„Fljót fyrir ofan Eyjafjörð“ er það eina sem ljósmyndarinn skrifaði um þessa glæsilegu mynd sem tekin var fyrir meira en öld síðan.
Myndina tók breski ljósmyndarinn Frederick W.W. Howell, sem ferðaðist til Íslands og Færeyja um aldamótin 1900. (Cornell University Library.)
Howell var mikið á Íslandi á síðasta áratug nítjándu aldar og starfaði meðal annars sem leiðsögumaður fyrir erlenda ferðalanga. Hann gekk á… [Lesa meira]
Jólahald á austurvígstöðvunum
Þýskir hermenn fá sér koníak og vindla á jólunum 1916. Þeir börðust á austurvígstöðvunum í fyrri… [Lesa meira]
…