Undir lok sjöunda áratugarins fylgdist heimsbyggðin með ótrúlegum afrekum geimvísindamanna þegar þeim tókst að skjóta geimförum alla leið til tunglsins. Á sama tíma kom út frábær kvikmynd eftir Stanley Kubrick sem hann gerði í samstarfi við vísindaskáldsöguhöfundinn Arthur C. Clarke. 2001: A Space Odyssey var tímamótamynd á óteljandi vegu. Myndin hafði óendanlega mikil áhrif… [Lesa meira]
Snjallir stjörnustælar: Ekkert brúnt M&M fyrir okkur, takk
Flestir rokkunnendur hafa eflaust einhvern tíman heyrt sögur af rokkhljómsveit sem var svo illa haldin af stjörnustælum að hún gerði kröfu um að baksviðs yrði boðið upp á sælgætistegundina M&M þar sem búið væri að flokka öll brún M&M frá og henda þeim. Sumir gætu haldið að þetta væri bara flökkusaga, en í raun er þetta ekkert svo galin krafa… [Lesa meira]
Sierra Nevada og hvernig Jimmy Carter bjargaði bjórnum í Bandaríkjunum
Þrátt fyrir að jarðhnetubóndinn Jimmy Carter hafi ekki verið sérstaklega vinsæll sem forseti Bandaríkjanna á meðan hann gegndi embættinu, hefur sagan leitt í ljós að hann er líklega einn sá skásti sem hefur setið í Hvíta húsinu.
Lemúrinn hefur til að mynda fjallað um áhuga Carters á sjálfbærri orkunýtingu. Síðan hann lét af embætti hefur hann verið óhræddur að ferðast… [Lesa meira]
Besta slagorð auglýsingasögunnar frá mesta drykkjumanni Írlands
Þeir sem hafa flett erlendum tímaritum eða horft á erlendar sjónvarpsstöðvar hafa áreiðanlega rekist á auglýsingar frá írska bjórframleiðandanum Guinness. Auglýsingar fyrirtækisins eiga til að verða eftirminnilegar, þá ekki síst slagorð Guinness. Mörg þeirra eftirminnilegustu má rekja til fjórða og fimmta áratugar síðustu aldar og var það enska auglýsingastofan S. H. Benson sem á heiðurinn af þeim.
Meðal þekktra slagorða má… [Lesa meira]
6. þáttur: Tyrkjaránið, minnkun mannkynsins, rasísk landafræðibók
Lemúrinn fer yfir sögu Tyrkjaránsins og gluggar í ferðasögu séra Ólafs Elíassonar sem sigldi alla leið til Algeirsborgar með sjóræningjunum, og skoðar hugmyndir hollensks listamanns um að meðalhæð mannkynsins verði lækkuð niður í 50 cm til að plánetan nýtist betur. Þá er lesið úr gamalli íslenskri kennslubók í landafræði þar sem birtast mjög úreltar hugmyndir um… [Lesa meira]
Hið dularfulla Frísland: Var stór eyja við hlið Íslands?
Ítalskt kort frá sextándu öld sýnir stærðar eyju skammt fyrir sunnan Ísland, sem merkt var Frísland. Það var upphafið að löngum misskilningi kortagerðarmanna víða um Evrópu. Nær öll landakort frá 1560-1660 sýna eyjuna, sem var auðvitað ekki til.
Ítalinn Nicolo Zeno sagðist hafa fundið landakort í Feneyjum og gaf það út undir eigin nafni árið 1558 (sjá að ofan). Zeno sagði… [Lesa meira]
