Japanskir samúræjar æfa bogfimi

Japanskir samúræjar æfa bogfimi með risavöxnum daikyū-bogum, sirka 1860. Samúræjastéttin var afnumin í Japan árið 1873 í tíð Meiji… [Lesa meira]

Pelé á Íslandi: Hringferð svörtu perlunnar á klakanum

Pelé kom einu sinni til Íslands! Heims­meist­ara­keppn­in í fót­bolta í Brasilíu hefst bráðum. Lemúrinn fjallar um ýmsa atburði sem tengir knatt­spyrnu­sögur Íslands og Brasilíu saman.

 

Þegar kemur að knatt­spyrnu er við fyrstu sýn ekki margt sem bindur Brasilíumenn og Íslend­inga saman. En hér verður þó fjallað um ýmsa atburði sem tengir knatt­spyrnu­sögur land­anna saman.

 

Förum til ársins 1991. Sumarið það ár var einstaklega… [Lesa meira]

Sister Act starfaði í Austur-Berlín sósíalismans

Afmælisbarn dagsins, Whoopi Goldberg, var ein skærasta stjarna Hollywood í byrjun 10. áratugar síðustu aldar. Hún fékk óskarsverðlaun árið 1991 fyrir að leika loddarann Hattie Mae Brown í kvikmynni Ghost og ári síðar sló hún rækilega í gegn í hlutverki Deloris Van Cartier, sálarsöngkonu sem dulbjó sig sem nunnu í ærslafullu gamanmyndinni Sister Act.

 

Færri vita um Goldberg, að eitt sinn… [Lesa meira]

Barist við „hitabylgjur suðrænnar skapgerðar“: Albert Guðmundsson í Brasilíu árið 1950

Árið 1950 sló íslenskur fótboltamaður í gegn í Brasilíu. Þetta var auðvitað Albert Guðmundsson.

 

Hér er sagt er frá því þegar svarta perlan, Pelé, besti knattspyrnumaður sögunnar, kom til Íslands árið 1991.

 

En eitt sinn fyrir langa löngu ferðaðist íslensk knattspyrnuhetja til Brasilíu. Hann heillaði Brassa upp úr skónum.

 

Hálfri öld áður en svarta perlan kom til Íslands hafði hvíta perlan farið… [Lesa meira]

7. þáttur: Pelé á Íslandi og Albert Guðmundsson í Brasilíu

Vegna þáttöku Íslands í umspili fyrir heimsmeistarakeppnina í fótbolta í Brasilíu á næsta ári fjallar Lemúrinn um ýmsa atburði sem tengir knattspyrnusögur Íslands og Brasilíu saman. Sagt er frá því þegar svarta perlan, Pelé, besti knattspyrnumaður sögunnar, kom til Íslands árið 1991. Einnig er fjallað um þegar hvíta perlan, Albert Guðmundsson, ferðaðist með enska liðinu Arsenal til Brasilíu árið… [Lesa meira]

Ans ans: Skemmtilegur spurningaþáttur fjölmiðlamanna árið 1987

Hraði og spenna voru einkunnarorð spurningaleiksins Ans ans á Stöð 2 árið 1987. Þar mættist fjölmiðlafólk í æsispennandi leik. Hljóð og mynd í þessum þætti er mjög skemmtilegt. Magnús Egilsson sá um hljóð í þættinum. Vel gert hjá honum. Umsjónarmenn voru Guðný Halldórsdóttir og Halldór Þorgeirsson, spyrlar Óskar Magnússon og Agnes Johansen. Nú hefur einhver hlaðið þáttunum upp á YouTube, sem… [Lesa meira]