Lokaatriðið í Blade Runner er í raun upphafsatriðið í The Shining

Dystópíska vísindaskáldskaparmyndin Blade Runner frá árinu 1982 á sér í dag dyggan aðdáendahóp, en hún er oft talin meðal svokallaðra ‘költ’-mynda. Myndin er byggð á skáldsögu Philip K. Dick, Do Androids Dream of Electric Sheep?, og er stórmerkileg að mörgu leyti, en hún veltir upp bæði heimspekilegum og siðferðislegum spurningum um það hvað það þýðir að vera mennskur. Myndin sjálf… [Lesa meira]

Brugðið á leik á bakvið tjöldin í The Shining

The Shining er ein magnaðasta hryllingsmynd allra tíma. Fyrir það fyrsta þá er hún byggð á sögu eftir hrollvekjumeistarann Stephen King (sem reyndar var ekkert sérstaklega ánægður með útkomuna) en það sem hún hefur fram yfir allar aðrar hryllingsmyndir er að leikstjóri myndarinnar var einhver rómaðasti leikstjóri sögunnar, fullkomnunarsinninn Stanley Kubrick.

 

Shining er miklu meira heldur en hryllingsmynd. Í meðförum Kubrick… [Lesa meira]

Moondog: Tónskáld, uppfinningamaður og norrænt goð (eða víkingurinn á sjötta breiðstræti)

Þeir sem hlusta á menningarþáttinn Víðsjá á Rás 1 ættu að kannast við lagið A Birds Lament, en það hefur verið notað sem inngangsstef þáttarins í nokkur ár. Þetta djassskotna verk var samið af tónskáldinu Moondog. Óhætt er að segja að hann hafi að mörgu leyti verið kynlegur… [Lesa meira]

Ónýtir puttar og Black Sabbath: Þungarokkið fæddist eftir blóðugt vinnuslys

Þetta er mögnuð saga. Spennið beltin! [Gítarsóló] 

 

Árið er 1965. Við erum stödd í Birmingham á Englandi. Gefum okkur að það sé rigningarsuddi og fremur grámyglulegt um að litast. Hinn 17 ára Tony Iommi er mættur til vinnu sinnar í stálverksmiðjunni þar sem hann vinnur við að rafsjóða saman pressaðar stálplötur.

 

Tony þessi þykir nokkuð efnilegur gítarleikari og hefur verið að gæla… [Lesa meira]

Finnar skjóta handsprengjum með teygjubyssu

Mynd þessi er frá tímum Vetrarstríðsins milli Finnlands og Sovétríkjanna 1938-1939. Hér sjáum við finnska hermenn gera sig reiðubúna til þess að skjóta handsprengju með risastórri heimatilbúinni teygjubyssu.

 

Vetrarstríðinu lauk óhjákvæmilega með ósigri Finna, og í kjölfarið gekk stór hluti Karelíuskaga til Sovétríkjanna. Finnarnir veittu hins vegar Rauða hernum gífurlega mótspyrnu og út stríðið féllu fimm sovéskir hermenn fyrir hvern… [Lesa meira]

Áróðursmálaráðuneytið: „Góðir vinir í þremur löndum“

„Góðir vinir í þremur löndum“. Mynd þessi birtist í Japan árið 1938 og fagnar bandalagi Þýskalands, Ítalíu og Japans, öxulveldanna svokölluðu í seinni heimsstyrjöld. Efst sjáum við leiðtoga þjóðanna þriggja: Adolf Hitler, Benító Mússólíní og Híróhító keisara. Fyrir neðan leika börnin sér með fána… [Lesa meira]