5. þáttur: Perúskir frumskógartónar, sýrlenskur Íslandsvinur og klósettþjálfun katta

Hlustið á Lemúrinn á Rás 1! Í tilefni af Airwaves-tónlistarhátíðinni grúskar Lemúrinn í reykfylltum kasettusjoppum á fjarlægum krummaskuðum og spilar ýmsa tóna. Perúsk chicha-tónlist úr Amasónskóginum og pönk, sýrlenski Íslandsvinurinn Ómar Súleiman og leiðarvísir í klósettþjálfun katta eftir djassgoðsögnina Charles Mingus.

 

Hlustið hér á þáttinn (mp3-​​skrá hjá hlað­varpi RÚV).

 

Lemúrinn er á hlaðvarpinu.

 

Umsjónarmenn eru Helgi Hrafn Guðmundsson og Vera Illugadóttir, lesari er… [Lesa meira]

Af hverju heitir Yo La Tengo, Yo La Tengo?

Bandaríska hljómsveitin Yo La Tengo er líklega ein besta starfandi hljómsveit í heimi. Á næstum 30 ára ferli hefur sveitin vart stigið feilspor og hefur auk þess haldið stöðugt áfram að ögra sér og aðdáendum sínum með ferskri og nýrri nálgun á tónlistarsköpun með hverri plötu.

 

Nú er svo komið að Íslendingar fá loksins að virða sveitina fyrir sér á tónleikum,… [Lesa meira]

Faðir döner kebap er látinn

Kadir Nurman, sem gekk lengi vel undir gælunafninu „Papa des Döners“ er látinn, 80 ára að aldri. Líklega eru ekki margir sem kannast við nafn Nurmans, en þrátt fyrir það má fullyrða að hann hafi verið einn áhrifamesti einstaklingur sinnar kynslóðar. Eins og gælunafnið gefur til kynna var Nurman talinn vera höfundur réttarins döner kebap, sem er umdeilanlega vinsælasti skyndibiti… [Lesa meira]

Fordlândia: Gúmmíborg Henry Ford í frumskógum Amasón

Fordlândia heitir draugabær í frumskógum Amasón í Brasilíu. Iðnjöfurinn Henry Ford reisti borgina á millistríðsárunum. Hann reyndi beisla frumskóginn og rækta gúmmítré. Ford þurfti gúmmí til að framleiða hjólbarða. Vinnumenn strituðu árum saman í myrkviðum frumskógarins án nokkurs árangurs. Og áætlanir Ford enduðu með ósköpum.

 

Í Amasón eru stærstu og mestu regnskógar heimsins. Hvergi eru fleiri plöntu- og dýrategundir samankomnar á… [Lesa meira]

Íslenskur ævintýramaður fór á fyllerí með Bandaríkjaforseta

Ritstjóri og ævintýramaður datt í það með forseta Bandaríkjanna og lánaði honum peninga.

 

Jón Ólafsson ritstjóri, sem reyndi að stofna Íslendinganýlendu í Alaska, hitti Ulysses S. Grant, Bandaríkjaforseta að máli, í Washington árið 1875. Jón hafði skrifað skýrslu um Alaskaáætlanir sínar og afhenti forsetanum skýrslu um málið. Forsetinn studdi hugmyndir Jóns og virtist hafa tekið honum fagnandi. Grant var á… [Lesa meira]

Ævintýramaðurinn Jón Ólafsson og milljónasamfélag Íslendinga í Alaska

Hvað ef Alaska væri nýlenda Íslendinga og teldi 100 milljónir íslenskumælandi manna? Að því keppti Jón Ólafsson ritstjóri, einn mesti hugsjóna- og ævintýramaður Íslandssögunnar. „Það hlæja ugglaust mörg fífl að þessu,“ skrifar hann um áætlanir sínar, en það geri ekki til því alltaf hafi verið hlegið að góðum hugmyndum.

 

Jón Ólafsson ritstjóri og skáld var litríkur ævintýramaður sem gustaði um, eins… [Lesa meira]