Jólaplata Phil Spector kom út sama dag og Kennedy var myrtur

Í dag minnast fjölmiðlar um allan heim þess að 50 ár eru liðin frá dauða John F. Kennedy, forseta Bandaríkjanna. Í dag minnist Lemúrinn þess einnig að 50 ár eru liðin frá öllu gleðilegri atburði, útgáfu fyrstu konseptplötunnar og bestu jólaplötu allra tíma, A Christmas Gift for You from Philles Records.

 

Nú á dögum, þegar hægt er að kaupa einstakt lag,… [Lesa meira]

Var faðir Woody Harrelson maðurinn sem myrti John F. Kennedy?

Í dag eru liðin 50 ár frá því að þáverandi forseti Bandaríkjanna, John F. Kennedy, var myrtur í Dallas, í Texas. Morðið á Kennedy er án efa einn umtalaðasti viðburður 20. aldarinnar, ekki aðeins fyrir Bandaríkjamenn – heldur heimsbyggðina alla. Þeir sem muna eftir 22. nóvember árið 1963 geta til að mynda vafalaust sagt hverjum sem vita vill, hvar þeir… [Lesa meira]

Braust inn til Elísabetar II og varð innblástur að lagi með The Smiths

Það eru ekki margir sem kannast við Michael Fagan í dag. Hann vakti þó mikla athygli sumarið 1982 en þá tókst honum að brjótast inn í Buckingham-höll… ekki einu sinni heldur tvisvar!

 

Málsatvik líkjast helst atriði úr bíómynd, þar sem fimur innbrotsþjófur leikur á hvern vanvita öryggisvörðinn á fætur öðrum. Í fyrra skiptið klifraði Fagan upp veggi Buckingham-hallar með því að… [Lesa meira]

Stalín afhöfðaður í Ungverjalandi

Mynd þessi er úr uppreisninni í Ungverjalandi 1956 gegn kommúnistastjórn landsins. Ungversku uppreisnarmennirnir hafa afhöfðað risastóra styttu af Jósef Stalín, sovéska harðstjóranum ógurlega sem látist hafði þremur árum áður.

 

Vesturveldin lofuðu Ungverjunum aðstoð en þau loforð voru öll svikin. Í kjölfarið barði Rauði herinn þá niður af mikilli hörku á meðan athygli heimspressunnar var fönguð af mislukkaðri innrás Bretlands og Frakklands í… [Lesa meira]

Víóluorgelið, furðulega hljóðfæri Leónardós da Vinci

Sjálfsmynd da Vincis.

Sjálfsmynd Da Vincis.

Leónardó Da Vinci (1452–1519) er ef til vill flestum kunnur fyrir að hafa málað Mónu Lísu, eitt þekktasta málverk sögunnar. En þessi merki hugvitsmaður fékkst einnig við allar helstu listir og fræði síns… [Lesa meira]

Hundrað magnaðar ljósmyndir frá Íslandi um aldamótin 1900 eftir Frederick W.W. Howell

Fjallagarpurinn og ljós­mynd­ar­inn enski, Frederick W.W Howell, tók stór­kost­legar ljós­myndir frá Íslandi um alda­mótin 1900.

 

Lemúrinn hefur verið iðinn við kolann að birta gamlar ljósmyndir sem sýna Ísland fortíðarinnar. Við höfum birt myndir eftir ljósmyndara á borð við Magnús Ólafsson, Willem van de Poll, Berit Wallenberg og Valgerði Tryggvadóttur. En einna merkilegastar eru ljósmyndir Fredericks W.W. Howell.

 

Howell var mikið… [Lesa meira]