Konum kennt að verjast bófum með íslenskri glímu í bandarískum blöðum

Árið 1924 fjallaði bandarískt dagblað um íslenska sjálfsvarnarlist, glímu, sem væri kjörin fyrir stúlkur. Þær gætu með ótrúlegum klækjabrögðum glímunnar yfirbugað kraftalega ribbalda með einfaldri snertingu.

 

Jóhannes á Borg, glímukóngur og hótelrekandi, ferðaðist vítt og breitt vestanhafs með sirkussýningum og breiddi hróður íslenskrar glímu út um Norður-Ameríku. Margir voru ákaflega hrifnir af þessari norrænu og kannski eilítið furðulegu bardagatækni.

 

Jóhannes var… [Lesa meira]

Skeggfræðingur: „Skeggið“ var faðir sovésku kjarnorkuáætlunarinnar

Igor Kurchatov (1903-1960) var ekki bara faðir hinnar sovésku kjarnorkuáætlunar heldur einnig faðir einhvers glæsilegasta skeggs veraldarsögunnar. Þetta var skegg sem eftir var tekið og Igor var gjarnan kallaður „Skeggið“ (e. The Beard).

 

Eftir að hafa skartað fremur hefðbundu og nokkuð veglegu alskeggi framan af ævinni ákvað hann að raka sig ekki fyrr en fyrsta kjarnorkusprengja Sovétmanna væri tilbúin. Í framhaldinu… [Lesa meira]

Íslenskur sirkuslistamaður bjargaði sóma lands og þjóðar

Árið 1930 var Hótel Borg reist. Talað var um að sóma lands og þjóðar hefði verið bjargað með stofnun hótelsins – en sá sem lagði út peningana var íslenskur sirkuslistamaður, Jóhannes Jósefsson.

 

Þegar orðinu sirkus er slegið upp í leitarvélum á vefnum koma oftast upp upphrópanir sem lýsa því að Alþingi sé sirkus, eða að þetta og hitt sé fjölmiðlasirkus. Sirkus… [Lesa meira]

Hitað Dr. Pepper var eitt sinn hátíðardrykkur

Drekkur þú Dr. Pepper? Ekki? En heitt og gott Dr. Pepper á jólunum? Ekki? Þú ert nú meiri skunkurinn.

 

Hver veit nema að niðjar okkar hneykslist á „blöndunni minni, blöndunni þinni“, eins og ölgerðin kallar hinn víðfræga samruna malts og appelsín. Og ef verur frá öðrum sólkerfum villast hingað til jarðar þá er ekki ólíklegt að þær muni fúlsa við þessum… [Lesa meira]

Rachmaninoff, Pétur kanína og fleiri gersemar í almannaeigu 2014

Lemúrinn óskar lesendum sínum gleðilegs árs. Við fögnum komu ársins 2014 ekki einungis sakir nýlundu þess. Þann 1. janúar á hverju nýju ári er einnig haldið upp á svokallaðan Public Domain-dag, þegar ómetanleg menningarverðmæti verða eign almennings.

 

Höfundaréttur í löndum Evrópusambandsins, og víðar, heldur 70 ár eftir and­lát, sem þýðir að þegar árið 2014 gekk í garð datt úr gildi höf­unda­réttur þeirra… [Lesa meira]

Áróðursmálaráðuneytið: Faðir og sonur ásamt börnum Norður-Kóreu

Á þessari áróðursmynd sjáum við Kim Il-Sung, ævarandi leiðtoga Norður-Kóreu, ásamt syni sínum og arftaka Kim Jong-Il, innan um hóp af norður-kóreskum börnum. Báðir þessir leiðtogar eru nú látnir, en ættin lifir þó áfram, því sonarsonurinn Kim Jong-Un fer nú með völdin þar í… [Lesa meira]