June Gudmundsdottir: Íslenska Hollywoodpersónan og „brandari ársins“

Árið 1992 sendi bandaríski leikstjórinn Robert Altman frá sér myndina The Player. Þetta var sérstök mynd, með fjölmörgum leikurum og persónum og fjallar um lífið í Hollywood, veröldina baktjaldamegin.

 

Stórleikarar á borð við Tim Robbins og Whoopi Goldberg leika í myndinni. Þessi mynd vakti töluverða athygli hér norður á klakanum því í henni var íslensk persóna, June Gudmundsdottir, sem Greta Scacchi… [Lesa meira]

Nan Madol, Feneyjar Kyrrahafsins

Nan Madol eru rústir fornar borgar á eyjunni Pohnpei í eyríkinu Míkrónesíu á Kyrrahafi. Borgin, sem líkist tökustað fyrir þáttaröðina Lost, var höfuðborg Saudeleur-veldisins þangað til um 1600 e. Kr.

 

Á þessu fagra og undarlega bæjarstæði byggðu Mikrónesar gríðarlega vandaða borg á tilbúnum eyjum með flóknu kerfi skurða. Nan Madol hefur verið uppnefnd „Feneyjar Kyrrahafsins“, en Nan Madol merkir „svæðið á… [Lesa meira]

Kort af Íslandi frá árinu 1590

Hér sjáum við kort af Íslandi frá síðasta áratugi 16. aldar, eftir flæmska landfræðinginn og kortagerðarmanninn Abraham Ortels. Eins og sést hefur sæskrímslum við strendur landsins eitthvað fækkað á síðastliðnum… [Lesa meira]

Hótel Borg árið 1930: Stórir sem smáir stilla sér upp

Starfsfólk á Hótel Borg árið 1930, þegar hótelið hóf starfsemi. Sirkuslistamaðurinn Jóhannes Jósefsson var stofnandi hótelsins en Lemúrinn hefur fjallað um skrautlegan feril hans nýlega. 

 

„Nýja gistihúsið, margumtalaða og langþráða, Hótel Borg, er nú tekið til starfa að nokkru leyti. Veitingasalir þess og samkvæmissalir voru fyrst notaðir 18. þ. m. og var þar dansleikur 300 manna og borðhald 180 manna… [Lesa meira]

Magnaðar ljósmyndir: Rússar berjast við áfengisdjöfulinn um 1900

Rússland er samkvæmt mælingum fjórða mesta drykkjuþjóð í heiminum. Langmest af því sem þeir sturta í sig er sterkt áfengi og þá helst vodka, en vín og bjór drekka þeir í miklu minna mæli. Vodkahefðin er auðvitað eldgömul og teygir sig aftur í aldir.

 

Hér sjáum við merkilegar ljósmyndir af Rússum að fá sér áfengi um og eftir aldamótin 1900.… [Lesa meira]

13. þáttur: Brandarar

Lemúrinn fjallar um brandara og fyndni. Í löndunum handan járntjaldsins gat fólk verið fangelsað fyrir það eitt að segja brandara – þó blómstraði brandarasmíði í þessum löndum. Skilur nútíma Íslendingurinn gamla íslenska… [Lesa meira]