„Bróðurmorðið“ 1913: Hundrað ár frá fyrsta morðmálinu í Reykjavík

Bærinn talaði ekki um annað en eiturmorðið í gær.

Á götunum heyrðist eigi annað samræðuefni.

Hvaðan er þessi Júlíana?

Hver var þessi Eyjólfur?

Ætli Jón sé meðsekur?

Hvaða refsing liggur við svona voðalegum glæp?

Svona spurði maður mann.

 

Þetta mátti lesa í Morgunblaðinu mánudaginn 17. nóvember 1913. Fyrir rétt rúmri öld síðan. Þá bjuggu 13.354 manns í Reykjavík. Svolítið færri en búa í Reykjanesbæ í dag.

 

Reykjavík hafði… [Lesa meira]

Þungarokkarar í Botsvana sýna klærnar

Í sunnanverðri Afríku hlusta sumir á þungarokk og klæða sig í vígalega búninga. Ljósmyndarinn Frank Marshall hefur gert sýningu um þennan forvitnilega menningarkima.

 

Ísland, Grænland og Ástralía eru dæmi um lönd sem skipa listann yfir strjálbýlustu lönd heims. Á þeim lista er líka að finna Afríkulandið Botsvana. Um tvær milljónir manna búa þar í víðáttumiklu landi sem Kalahari-eyðimörkin þekur. Inni á… [Lesa meira]

Myndband sýnir Berlín í lit árið 1900

Vídjó

Hér sjáum við lituð myndskeið frá Berlín, höfuðborg Þýskalands, á síðasta ári 19. aldar. Myndbandið sýnir daglegt líf Berlínarbúa árið 1900 — götur, opinber rými, sporvagna, hestvagna, hermenn, lestir og annasama borgara við iðju sína.

 

Á þessum tíma var Þýskaland ungt ríki. Konungdæmið Prússland hafði sameinað hin fjölmörgu þýsku furstadæmi í eitt ríki á síðari… [Lesa meira]

Reykjavík í kringum 1870

Reykjavík í kringum 1870. Við sjáum til dæmis stjórnarráðið, dómkirkjuna og aðalbyggingu Menntaskólans í Reykjavík.

 

Heimild: Þór Magnússon (1976). Ljósmyndir Sigfúsar Eymundssonar, Almenna bókafélagið,… [Lesa meira]

Thuggee-fantarnir úr Indiana Jones voru hinir upprunalegu „thugs“

Ævintýri Dr. Henry „Indiana“ Jones voru eftirminnileg fyrir kynslóðir barna og unglinga sem uxu úr grasi á 9. áratug síðustu aldar. Síðan þá bætist stöðugt í aðdáendahópinn, þótt síðasta kvikmynd um fornleifafræðinginn knáa hafi líklega fælt heilu kynslóðina frá sagnabálkinum mikla.

 

Dr. Jones þurfti að kljást við fjölda óvina og dusilmenna, nasistar voru þar líklega fremstir meðal jafningja. En óhugnalegastir dusilmennanna… [Lesa meira]

Jólaköttur Lemúrsins: Bubba litla

Jólaköttur Lemúrsins í ár er Bubba litla (e. Lil’ Bub), læða frá Indiana-fylki í Bandaríkjunum.

 

Bubba er sérstakur köttur. Hún kom í heiminn með alvarlegan fæðingargalla sem heftir vöxt hennar. Fyrir vikið er hún á stærð við kettling, dvergvaxin. Hún á dálítið erfitt um gang því útlimir hennar eru mun styttri en hjá öðrum köttum. Neðri kjálki hennar er styttri en… [Lesa meira]