David Cronenberg er merkilegur kanadískur kvikmyndagerðarmaður. Hann hefur á löngum ferli gert ýmsar sniðugar myndir sem oftar en ekki eru myrkir vísindaskáldsögutryllar eða spennumyndir þar sem kafað er ofan í sálartetur mannsins, til dæmis The Fly, Dead Ringers, Crash, Scanners, Eastern Promises og A History of Violence. Hér er fróðlegur heimildarþáttur frá BBC um Cronenberg, sem sýndur var árið… [Lesa meira]
Kasakar nítjándu aldar
Hér sjáum við auðugan nítjándu aldar Kasaka ásamt konu sinni. Þessi ljósmynd og þær sem fylgja voru teknar í mið-asíuríkinu Kasakstan á árunum 1870-1886. Á þessum tíma var verið að innlima Kasakstan í Rússneska keisaradæmið. Landið var undir oki Rússa á einn hátt eða annan fram til upplausnar Sovétríkjanna 1991.
… [Lesa meira] „Hjólin voru úr tré“: Saga reiðhjólsins á Íslandi í ljósmyndum
Það er gaman að hjóla og þeir sem renna sér niður brekkur Reykjavíkur eða annarra staða á Íslandi velta kannski stundum fyrir sér hvenær reiðhjól birtust fyrst hér á landi. Reiðhjól eru frekar nýleg uppfinning og voru fyrst notuð á meginlandi Evrópu upp úr 1815 og voru frumstæðir gripir fyrst um sinn.
Kona með húðflúr, 1907
Bandaríska konan frú M. Stevens Wagner, í kringum 1907. Eiginmaður hennar var… [Lesa meira]
Mr. Burns og frönskukennarinn
„Konan mín hefur alltaf sagt að frönskukennari hennar í grunnskóla hafi verið tvífari Mr. Burns,“ segir eigandi myndarinnar hér að ofan. „Núna trúi ég henni.“ Mr. Burns, er fyrir þá sem ekki vita, hinn moldríki eigandi kjarnorkuversins í Springfield, sögusviði hins mikla sagnabálks um Simpson-fjölskylduna. Via… [Lesa meira]
Dark Star frá 1974: Talað við strandbolta og dauðan mann í geimnum
Þeir sem hafa horft á margar vísindaskáldsögumyndir kannast kannski við bandaríska leikstjórann John Carpenter. Hann hefur gert fjölmargar skrímsla- og hryllingsmyndir. En þekktasta verkið hans er líklega The Thing frá 1982, sem er mögnuð mynd um skelfilegt geimskrímsli á Suðurskautslandinu. En fyrsta mynd Carpenters hét Dark Star og er einskonar skopstæling á geimmyndum á borð við 2001: A Space… [Lesa meira]