Sjónvarpsþáttur spáði fyrir um hryðjuverkin 11. september

Árið 2001 var gerð skammlíf hliðarþáttaröð út frá X-Files þáttunum sívinsælu sem bar nafnið The Lone Gunmen. Þættirnir fjölluðu um þrjá nördalega gaura úr upprunalegu þáttunum, sem halda úti samsæriskenningatímariti og hafa í gegnum tíðina aðstoðað Fox Mulder við að leysa ráðgátur.

 

Nafn þríeykisins vísar til kenningarinnar um að ein skytta (e. lone gunman) hafi myrt John F. Kennedy. Þeir búa í… [Lesa meira]

„Rottan“ sem leiddi til rauða spjaldsins

Spjaldakerfi knattspyrnunnar virkar mjög einfalt og rökrétt kerfi, gult spjald þýðir að leikmaður er á hálum ís og rautt spjald þýðir brottvikningu. Hinsvegar kom þetta kerfi ekki til sögunnar fyrr en á heimsmeistaramótinu 1970. Innblásturinn að því má rekja til leiks milli Englands og Argentínu í átta liða úrslitum keppninnar fjórum árum fyrr á Wembley.

 

Leikurinn var grófur og vægðarlaus og… [Lesa meira]

Þegar sármóðguð íslensk stjórnvöld báðu Bandaríkin um að endurnefna bíómynd um Ísland

Árið 1942 kvörtuðu stjórnvöld á Íslandi formlega undan bíómynd frá Hollywood sem bar nafnið Iceland og átti að gerast á landinu. Þjóðin öll var sármóðguð yfir kvikmyndinni sem þótti uppfull af ærumeiðandi rangfærslum.

 

Í dag erum við kannski orðin vön því að Ísland birtist í bíómyndum. Nú á dögum streyma frægir leikstjórar og leikarar til landsins til að taka upp myndir.

 

En… [Lesa meira]

Tólf vikna og tólf milljón ára gamlir kettlingar bregða á leik

Vídjó

Hvaða skrítnu skepnur eru þetta? Þessir æstu hnoðrar eru tólf vikna gamlir kettlingar af tegund pallasarkatta eða manul (Otocolobus manul).

 

Pallasarkötturinn er elsta kattartegund heims, þessar kisur hafa ráfað um gresjur Miðasíu í tólf milljón ár. Nánar má lesa um þá hér.

 

Hér má sjá sömu kettlinga aðeins fimm vikna gamla, þó eru þeir strax farnir… [Lesa meira]

Kjarnorkustríð í kosningaauglýsingu Lyndons Johnsons

Vídjó

Þessi fræga auglýsing, sem ber heitið Daisy, var hluti af áróðursherferð Lyndons B. Johnson í forsetakosningum Bandaríkjanna árið 1964. Johnson hafði tekið við af Kennedy árið áður og var í framboði fyrir demókrata, en mótherji hans úr repúblíkanaflokknum var íhaldsmaðurinn Barry Goldwater.

 

Í kosningabaráttunni beitti Johnson því bragði að saka Goldwater um að vera óábyrgan og stríðsglaðan, og… [Lesa meira]

Stal Lykke Li frá Daniel Johnston?

Lykke Li er hæfileikarík sænsk söngkona sem hefur slegið í gegn á undanförnum árum. Á nýjustu plötu söngkonunnar , I Never Learn, er að finna smellinn „No Rest For The Wicked“ sem hefur fengið að hljóma duglega á útvarpsstöðvum vestrænna ríkja síðustu vikur. Það er reyndar Björn Yttling, sem margir kannast við sem bassaleikara hljómsveitarinnar Peter, Björn & John, sem er… [Lesa meira]