Árið 2001 var gerð skammlíf hliðarþáttaröð út frá X-Files þáttunum sívinsælu sem bar nafnið The Lone Gunmen. Þættirnir fjölluðu um þrjá nördalega gaura úr upprunalegu þáttunum, sem halda úti samsæriskenningatímariti og hafa í gegnum tíðina aðstoðað Fox Mulder við að leysa ráðgátur.
Nafn þríeykisins vísar til kenningarinnar um að ein skytta (e. lone gunman) hafi myrt John F. Kennedy. Þeir búa í… [Lesa meira]

