Frábær nýr lemúr er kominn í ljós

Sjáið þessa fögru, frábæru skepnu. Þetta er glæný lemúrategund, áður óþekkt: Lavasóa-dverglemúr (Cheirogaleus lavasoensis).

 

Lavasóa-dverglemúrinn hefur auðvitað verið til lengi, og er ekki „nýr“ í öðrum skilningi en að við mennirnir, sem sækjumst eftir því að skilgreina lemúra heimsins í flokka og tegundir, vissum ekki fyrr en nú af tilvist hans og sérstöðu.

 

Eins og dyggir lesendur vita eru til meira en… [Lesa meira]

Thomas Quick: Sænski raðmorðinginn sem myrti engan

Í rúma tvo áratugi hefur illræmdasta raðmorðingja í sögu Norðurlandanna verið haldið innan veggja réttargeðdeildarinnar í Säter í Svíþjóð. Quick hefur í gegnum tíðina gengist við fjölda ódæðisverka og lýst hrottalegri meðferð á fórnarlömbum sínum, nauðgunum og mannáti fyrir hverjum þeim sem vildi heyra. Það merkilegasta við sögu þessa þekktasta glæpamanns Svíþjóðar er að hann virðist ekki hafa framið neitt… [Lesa meira]

Gleymd en ekki grafin: Ótrúleg saga Vashti Bunyan

Oft vill það verða svo að listamenn fá ekki verðskuldaða athygli og viðurkenningu fyrr en eftir að þeir eru komnir í gröfina. Jafnvel popptónlistarmenn. Jim Morrison og hljómsveit hans The Doors hefur líklega aldrei verið vinsælli en í dag. Það sama má segja um Bob Marley. Enginn hefur þó „hagnast“ jafnmikið á dauða sínum og Jeff heitinn Buckley, nú, eða… [Lesa meira]

New York í lit um aldamótin 1900

Stærsta bókasafn í heimi, Library of Congress í Bandaríkjunum, hefur birt þessar glæsilegu litmyndir af New York City frá aldamótunum 1900. Neðst á myndunum má sjá upplýsingar um nákvæmari staðsetningu.

 

290

 

372[Lesa meira]

Hiroshima station

Lesandi Lemúrsins er staddur í Japan og sendir þessa mynd: „Þegar stigið er út úr lestinni blasir allt við eins og í öllum öðrum japönskum stórborgum á því herrans ári 2013; glæsileg verslunarhús í neonbaði, flissandi skólastúlkur í pilsum og hnésokkum, brosandi leigubílstjórar með hvíta hanska, kaupsýslumaður með hjólatösku segir félaga sínum brandara sem báðir hlæja að, drepur í sígarettu… [Lesa meira]

Innrásin frá Mars árið 1938: Útvarpsleikritið sem skelfdi milljónir manna

Vídjó

Á sunnudagskvöldi í október árið 1938 urðu milljónir bandarískra útvarpshlustenda skelfingu lostnir þegar fluttar voru fréttir af innrás Marsbúa til jarðar, nánar tiltekið í New Jersey-ríki. Sumir flúðu heimili sín í dauðans ofboði, fleygðu einhverju lauslegu í ferðatöskur og brunuðu burt út í bláinn á bílum sínum.

 

En í raun var þetta snilldarlegt útvarpsleikrit sem kornungur… [Lesa meira]