Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.

Blind kona í New York árið 1916

Blind kona í New York árið 1916. Fræg mynd ljósmyndarans Paul Strand sem nú er geymd í Metropolitan Museum of Art.

 

„Þetta er ljósmynd af blindri konu sem tekin var úti á götu í New York. Þessi kona er betlari. Á hálsinum hangir skilti með greinilegum stöfum, sem leyfir henni að betla: þetta var á öld frjálslyndisins, þegar betlarar þurftu á… [Lesa meira]

Krókódílar ljósmyndaðir

Breskur ljósmyndari á Indlandi tekur mynd af krókódílum, 1907. (The National… [Lesa meira]

Indíánastúlka í Texas árið 1906

Hún hét Kaw-u-tz og var Caddo-indíáni, en það var þjóð sem byggði Suðurríkin áður en Evrópumenn fundu Ameríku. Texas, 1906.… [Lesa meira]

Greifynjan Casati eftir Man Ray

Ítalska greifynjan Luisa Casati var frægur furðufugl í listalífi Evrópu í byrjun tuttugustu aldarinnar. Ótal listamenn máluðu myndir af henni. Hér sjáum við hins vegar ljósmynd sem bandaríski listamaðurinn Man Ray tók árið… [Lesa meira]

Farþeginn Franz Kafka árið 1906

Tékkneski rithöfundurinn Franz Kafka árið 1906. Ljósmyndari ókunnur. Myndin er sögð hafa hangið á vegg í svefnherbergi Júlíu, móður Kafka. Kafka fæddist árið 1883 og var sonur þýskumælandi gyðinga af millistétt sem bjuggu í Prag sem þá var hluti Austurríkis-Ungverjalands. Hann lést úr berklum árið 1924.

 

Farþeginn

Ég stend á útipalli vagnsins rafknúna og veit nákvæmlega ekki neitt fyrir víst um stöðu mína… [Lesa meira]

Zeppelin og píramídarnir miklu

Hér sést þýska loftskipið Graf Zeppelin sigla á himninum fyrir ofan píramídana í Giza árið 1938. Athugið að mennirnir á myndinni sitja á tindi eins af píramídunum og horfa yfir á píramídann mikla, sem kenndur er við faraóinn Khufu… [Lesa meira]

Hakakrossarnir frá Edmonton, 1916

Hinar mætu íshokkíkonur í The Edmonton Swastikas í kanadísku borginni Edmonton í Alberta árið 1916. Hakakrossar voru auðvitað notaðir í ýmsum táknum áður en Hitler og félagar gerðu þá að merki sínu talsvert síðar.

 

Hið furðulega er að kanadísk kvennalið í íshokkí virðast hafa verið ákaflega upptekin af hakakrossum því Lemúrinn hefur áður minnst á The Swastikas, sem var íshokkílið… [Lesa meira]

Amundsen á pólnum

Í dag eru hundrað ár liðin síðan Norðmaðurinn Roald Amundsen og félagar hans urðu fyrstir manna til að komast til suðurpólsins á Suðurskautslandinu. Þessi ljósmynd var tekin nokkrum dögum eftir að leiðangursmenn komust á leiðarenda hinn 14. desember 1911.

 

Skoðið fleiri myndir frá Suðurskautslandinu… [Lesa meira]

Vaktaskipti í Drøbak í Noregi árið 1915

Anders Beer Wilse tók þessa ljósmynd í ískulda í Drøbak í Noregi árið… [Lesa meira]

Betlari í Teheran, 1900

Betlari í Teheran í Íran, árið 1900. Myndina tók rússneski ljósmyndarinn Antoine… [Lesa meira]

J.P. Morgan ræðst á ljósmyndara

Bandaríski iðnjöfurinn J.P. Morgan slær ljósmyndara með stafnum sínum. New York í kringum árið… [Lesa meira]

Bandarískur hermaður slakar á við Íslandsstrendur

20. maí 1943. Herskip skammt frá Íslandi. Bandarískur hermaður les bók í káetunni. (United States Army).

 

Maímánuður 1943 er nefndur „svarti maí“ í sögu síðari heimsstyrjaldarinnar en þá glataði þýski sjóherinn mörgum skipum og kafbátum í stríðinu við Bandamenn á Atlantshafinu og við það urðu mikil… [Lesa meira]