Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.

Verkamenn og akkeriskeðjur

Verkamenn við hlið akkeriskeðja breska farþegaskipsins RMS Mauretania, um 1906. RMS Mauretania fór í jómfrúarferð sína árið 1907 og var þá bæði stærsta og hraðskreiðasta skip sögunnar. (Tyne & Wear Archives &… [Lesa meira]

Fyrsta kvennalið Fram í handbolta árið 1944

Fyrsta handboltalið Fram í kvennaflokki. Myndin er tekin á Akranesi árið 1944 eftir 7-0 tap gegn Skagastúlkum.

 

Borgarskjalasafn Reykjavíkur er mikill fróðleiksbrunnur. Það annast ekki bara skjalavörslu fyrir yfirvöld í Reykjavík heldur safnar það einnig ýmsum bréfum og ljósmyndum úr einkasöfnum er tengjast sögu höfuðborgarinnar og íbúum hennar. Lemúrinn rakst á þessa ljósmynd á Facebook-síðu safnsins. Eftirfarandi texti fylgir myndinni þar:

 

„Hér hafði… [Lesa meira]

James Joyce árið 1926

Írski rithöfundurinn James Joyce árið 1926. Ljósmyndina tók hin bandaríska Berenice Abbott.

 

„Ég óska þess stundum, að ég hefði aldrei lesið Ulysses. Ég fæ minnimáttarkennd af þeirri bók. Þegar maður les slíkt verk og sest svo sjálfur við skrifborðið, líður manni eins og geldingi sem hefur farið á námskeið í raddbeitingu til þess að tala eins og karlmaður, en nær ekki… [Lesa meira]

Bedúínar í fannfergi

Bedúínafjölskylda stillir sér upp fyrir utan tjald sitt eftir að snjóstormur reið yfir Jerúsalem og nágrenni þess í febrúarlok árið 1921. (Library of Congress).

 

… [Lesa meira]

Stevens-fjölskyldan í Iowa

Hjónin Frank og Julia Belle Stevens frá Iowa-fylki í Bandaríkjunum, og börnin þeirra fimm, röðuðu sér upp fyrir þessa fjölskyldumynd árið 1909. Börnin, frá vinstri: Oren (f. 1905), Kenneth (f. 1903), Cecil (f. 1900), Ralph (f. 1898), Hugh (f.… [Lesa meira]

Kerlingarfjöll árið 1900

Kerlingarfjöll, um 1900. „Slagurinn á milli íss og elda.“

 

Myndina tók breski ljós­mynd­ar­inn Frederick W.W. Howell, sem ferð­að­ist til Íslands og Færeyja um alda­mótin 1900. (Cornell University… [Lesa meira]

Suðurskautslandið árið 1912

Þessa mynd tók ástralski ljósmyndarinn Frank Hurley árið 1912 við Denisonhöfða á Suðurskautslandinu.

 

Skoðið fleiri myndir Franks Hurley frá Suðurskautslandinu… [Lesa meira]

Rústir þýskrar borgar í apríl 1945

Heilbronn í Baden-Württemberg rústir einar í lok síðari heimsstyrjaldarinnar í apríl 1945. (NARA-Wikimedia… [Lesa meira]

Borg guðanna í Mexíkó

Astekapíramídinn í Teotihuacan í Mexíkó. Nafnið Teotihuacan merkir „borg guðanna“ á náhuatl, tungumáli astekanna. Myndina tók Hugo Brehme árið… [Lesa meira]

Yosemite árið 1872

Kyrrlát stund í þjóðgarðinum í Yosemite  í Kaliforníu árið 1872. Ljósmyndari Eadweard J.… [Lesa meira]

Grafið eftir líkum eftir jarðskjálftann á Sikiley, 1908

“Hinn forðum fagri sjávarbakki eftir skjálftann. Grafið eftir líkum. Messina, Sikiley.”

 

Sterkasti og mannskæðasti jarðskjálfti sem varð í Evrópu á 20. öld reið yfir Sikiley og suðurhluta Ítalíu þann 28. desember árið 1908. Á bilinu 100-200.000 manns létu lífið í skjálftanum og flóðbylgjunni sem fylgdi. Hin forna borg Messina á Sikiley var nær gereyðilögð. (Wikimedia… [Lesa meira]

Áramótagleði í fangabúðum, 1945

Þetta eru Bandaríkjamenn af japönskum uppruna á gamlárskvöldi að fagna komu ársins 1945. Þau eru stödd í fangabúðum í Utah-ríki.

 

Í seinni heimsstyrjöld voru Bandaríkjamenn af japönsku bergi brotnir álitnir hugsanlegir landráðamenn, og komið fyrir í sérstökum “kyrrsetningarbúðum” sem ekki voru annað en fangabúðir. Alls voru 110.000 manns teknir til fanga, og voru langflestir bandarískir… [Lesa meira]