Það eru aðeins tæp­lega 200 ár liðin frá því menn sáu Suðurskautslandið í fyrsta sinn. Hinn 27. janúar 1820 sáu Fabian Gottlieb von Bellingshausen, þýskætt­aður höf­uðs­maður og land­könn­uður í rúss­neska flot­anum, og und­ir­menn hans glitta í hina ísilögðu heims­álfu eilífs vetrar frá skipum sínum. Og það var ekki fyrr en í byrjun tutt­ug­ustu ald­ar­innar að tæknin leyfði mönnum í fyrsta sinn að kanna Suðurskautslandið almennilega.

 

Sumarið 1911 ferð­að­ist hópur ástr­alskra vís­inda­manna til Suðurskautslandsins og dvaldi þar til 1914. Jarðfræðingurinn Dr Douglas Mawson var leið­ang­urs­stjóri. Þetta var á sama tíma og könn­uðir á borð við Roald Amundsen, Robert Falcon Scott, Ernest Shackleton og fleiri sögu­frægir menn drýgðu hetju­dáðir miklar í þess­ari leynd­ar­dóms­fullu álfu.

 

Mawson leiddi menn sína til King George V Land og Adelie Land, þess hluta Suðurskautslandsins sem er beint suður af Ástr­alíu, en það voru nær algjör­lega ókunn lönd á þeim tíma.

 

Hér sjáum við myndir sem ljós­mynd­ar­inn Frank Hurley tók í bæði þessum sögu­fræga ástr­alska leið­angri og fleiri ferðum sem farnar voru árin á eftir. Myndirnar eru varð­veittar í State Library of New South Wales.

Borgarísjaki í sumarbirtu.

Borgarísjaki í sumarbirtu.

Svepplaga borgarísjaki.

Svepplaga borga­rís­jaki.

Xavier Mertz í endalausri ísbreiðunni, 1912.

Svissneski könn­uð­ur­inn Xavier Mertz í enda­lausri ísbreið­unni, 1912. Hann lést árið síðar á Suðurskautslandinu.

Harold Hamilton og beinagrind af sæfíl.

Harold Hamilton og beina­grind af sæfíl.

 

Hellir sem hafið myndaði í ísnum.

Hellir sem hafið mynd­aði í ísnum.

 

 

Flak skips­ins ‘Gratitude’, Macquarie-​​eyja, 1911.

Ævintýramaðurinn Francis Howard Bickerton og ísinn.

Ævin­týra­mað­ur­inn Francis Howard Bickerton og ísinn.

 

 

Hvolpurinn Blizzard.

Hvolpurinn Blizzard.

Arthur Sawyer, loftskeytamaður, með ungum sæfílum.

Arthur Sawyer, loft­skeyta­maður, með ungum sæfílum.

C.T. Madigan með ísgrímu.

C.T. Madigan með ísgrímu.

Sæfílsurta, Macquarie-eyja.

Sæfílsurta, Macquarie-​​eyja.

 

Huskiehundar draga sleðann.

Huskiehundar draga sleðann.

Héluð mörgæs.

Héluð mörgæs.

 

Vetrarbúðir á Queen Mary Land.

Vetrarbúðir á Queen Mary Land.