Þeir skipta hundruðum, leikararnir sem hafa farið í búning Jósefs Stalín í gegnum tíðina. Og á listanum leynast ýmsir furðufuglar. Á meðan Stalín var á lífi gat leikari sem lék hann „illa“ verið sendur í gúlagið, en aðrir mökuðu krókinn á að leika ekkert nema Stalín aftur og aftur. Þá hafa vestrænir stórleikarar eins og Robert Duvall og Michael Caine tekið að sér þetta vandasama hlutverk með misjöfnum árangri.
 


 

Stalín birtist fyrst á hvíta tjaldinu í Sovétríkjunum árið 1937, í mynd Mikhails Romm, Lenín í október (Lenin v oktyabr). Þar fór Semjon Goldschtab með hlutverk Stalíns:

 

 

Sagan segir að Stalín sjálfur, sem var mikill kvikmyndaáhugamaður, hafi ekki verið ánægður með leik Goldschtabs. Tveimur árum síðar kom út framhaldið af Lenín í október, Lenín árið 1918, og þá var annar leikari kominn í hlutverk Stalíns. Mikhail Gelovani var Georgíumaður eins og Stalín sjálfur.

 

Hann lék leiðtogann fyrst árið 1937 í myndinni Mikill bjarmi (Velikoe zarevo) og næstu sextán árin gerði Gelovani lítið annað en að leika Stalín, í að minnsta kosti sextán kvikmyndum. Stalín var hæstánægður — Gelovani fékk fjórum sinnum Stalínverðlaunin, auðvitað alltaf fyrir að leika Stalín.

 

Mikhail Gelovani í „Lenín árið 1918“ frá 1939 og „Óðurinn“ (Klyatva) frá 1946.

 

Því miður fór illa fyrir ævistarfi Gelovanis eftir dauða Stalíns sjálfs árið 1953. Sovéskar kvikmyndir sem sýndu Stalín í lofsamlegu ljósi (og auðvitað voru þá engar kvikmyndir sem gerðu það ekki!) voru bannaðar, eða persóna Stalíns klippt burt. Gelovani lék ekki fleiri kvikmyndum.

 

Svo margar kvikmyndir voru þó gerðar um Stalín á valdatíð hans að ekki var nóg að hafa einn sérstakan Stalínleikara, Mikhail Gelovani hafði ekki undan að leika alla þá Stalína sem sovéskur kvikmyndaiðnaður heimtaði. Margir leikarar léku leiðtogann aftur og aftur.

 

Andro Kobaladze (einnig Georgíumaður, eins og fleiri afkastamiklir Stalínleikarar) lék Stalín að minnsta kosti tíu sinnum og varð ferill hans öllu farsælari en Gelovanis — Kobaladze var fyrst Stalín árið 1940 í myndinni Jakov Sverdlov og hélt uppteknum hætti allt fram til ársins 1982.

 

Andro Kobaladze sem Stalín í „Pravda“ árið 1957, og sjónvarpsþáttunum „Landamæri ríkisins: Austurvígstöðvarnar“ árið 1982.

 

Leikarinn og leikstjórinn Aleksei Dikij lék Stalín þrisvar á árunum 1947-1949. Tíu árum áður hafði Dikij, þá leikhússtjóri í Leníngrad, lent í ofsóknum Stalíns — hann var handtekinn fyrir andsóvésk athæfi og dvaldi í fjögur ár í gúlaginu í Síberíu. Það kom þó ekki að sök — Stalín fyrirgaf honum og var svo himinn lifandi með leik hans að hann veitti honum oftar en einu sinni Stalínverðlaunin. Sjálfur ku Dikij hafa sagt síðar að þegar hann lék Stalín hafi hann ekki leikið manneskju, heldur granítstyttu.

 

Aleksei Dikij sem Stalín í myndinni „Baráttan um Stalíngrad“, sem hann fékk Stalínverðlaunin fyrir árið 1950.

 

 

En nú skulum við hlaupa fljótt yfir sögu og líta á fleiri Stalína sem dúkkað hafa upp á hvíta tjaldinu í sovéskum, rússneskum og erlendum kvikmyndum. Þeir eru, vægast sagt, mis sannfærandi þó allir séu með yfirvaraskeggið og pípuna á hreinu. Það var rússneski bloggarinn Edward Milokumov sem vann þrekvirki í þágu stalínískra kvikmyndafræða og safnaði saman þessum myndum. (Þetta er þó ekki tæmandi listi.)

 

Bukhuti Zaqariadze lék Stalín í „Frelsunin“ (Osvobozhdenie), fimm mynda stórvirki um seinni heimsstyrjöld sem kom út 1970-1971.

 

Jakov Tripolskíj lék Stalín í fimm kvikmyndunum á árunum 1975-1985.

 

Armeninn Georgíj Saakyan hefur leikið Stalín í að minnsta kosti níu myndum og sjónvarpsþáttum á löngum ferli. Á heimasíðu sinni titlar hann sig „Stalín númer eitt í rússneskri og sovéskri kvikmyndagerð“.

 

 

Áður en lengra er haldið verður nú tilkynnt hver hlýtur verðlaun Lemúrsins fyrir besta leikara í Stalínhlutverki. Það er auðvitað breski stórleikarinn Michael Caine, sem fór með hlutverk leiðtogans í breskri sjónvarpsseríu, World War II: When Lions Roared, árið 1994. Bob Hoskins var Churchill og John Lithgow Roosevelt. Í þessu atriði sést hversu vel Caine nær hinum víðkunna cockney-hreim Stalíns:

 

Vídjó

 

 

Archil Gomiashvili lék Stalín sex sinnum á árunum 1986-1993.

 

Aleksei Petrenko hefur leikið Stalín fjórum sinnum, fyrst 1989 og síðast 2009.

 

Georgij Kavtaradze sem Stalín í sjónvarpsseríunni „Nikolai Vavilov“ árið 1990.

Razam Chkhikvadze hefur leikið Stalín fjórum sinnum, fyrst 1984 og nú síðast í „Í ágúst 1944“ frá 2001.

 

Viktor Proskurin í „Povest nepogashennoi luni“, 1990.

 

Robert Duvall lék Stalín í samnefndri sjónvarpsmynd árið 1992.

 

Aleksandr Zbruev í „Innsta hringnum“, 1991.

 

Ígor Kvasja sem Stalín 1995 og Stalín 2007.

 

Kanadíski leikarinn Serge Christianssens sem Stalín í myndinni „Hiroshima“, 1995.

 

Sergei Razhuk í „Telets“, 2001. (Lemúrinn mælir hiklaust með þessari mynd)

 

Maxím Sukhanov í „Börnin á Arbat“, 2004, og „Sólbruna 2“, 2010.

 

Andrei Krasko sem Stalín og Sergei Bezrukov sem ‘Draugur Stalíns’ í myndinni „Esenín“ frá 2005.

 

Avtandil Makharadze í bresku sjónvarpsmyndinni „Archangel“ frá 2005.

 

Armen Dzhigarakhnian í „Zvezda epokhi“ frá 2005.

 

David Giorgobiani í „Stalin Live“ frá 2006.

 

Duta Skhirtladze í sjónvarpsseríunni „Kona Stalíns“ frá 2006.

 

André Dussollier í frönsku kvikmyndinni „Une exécution ordinaire“ frá 2010.

 

Svona að lokum skulum við rifja upp snilldarlega túlkun Michael Caines úr World War II: When Lions Roared.