Fjölmiðlar hafa undanfarið fjallað um dularfulla konu sem sést hefur í fylgdarliði hins nýkrýnda einræðisherra Norður-Kóreu, Kim Jong-un. Einhverjir hafa varpað fram þeirri kenningu að þetta sé Hyon Song-wol, fráskilin söngkona sem Kim litli mun hafa þekkt í mörg ár.
Hyon Song-wol er ein af mörgum söngkonunum sem troðið hefur upp með aðalpopphljómsveitinni í Norður-Kóreu, Pochonbo Electronic Ensemble. Lemúrinn hefur áður fjallað um þá ágætu sveit hér en þá var það söngkonan Li Kyung-suk sem söng með sveitinni.
Hérna að ofan er lag með Pochonbo og Hyon Song-wol, sósíalíski raunsæisslagarinn Mær á velættuðum hesti frá árinu 2005.
Textinn ku vera eitthvað á þessa leið:
Félagarnir í verksmiðjunni hlæja og segja
Nú, þeir líta á mig og segja
Ég er mær á velættuðum hesti
Jafnvel eftir erfiðan vinnudag
hef ég ekki fengið nóg
Hæfileikar mínir eru sem eldingar
Þeir segja að ég sé mærin á velættuðum hesti
Í dag fór ég í vinnuna á undan öllum öðrum
Hvað haldiði, nafnið mitt var í dagblaðinu!
Á tímum sem við stökkvum af gleði
Þetta eru verðlaun veitt æskunni
Þeir segja að ég sé mærin á velættuðum hesti
Á tímum sköpunnar verkamannaflokksins
Hið ástkæra nýja nafn sem æsku minni var veitt
Hershöfðinginn mikli setti mig á velræktaðan hest
Ég lifi til að dásama nafn hans