Þúsund stökkvandi skötur

Á hverju ári safnast saman þúsundir arnarskatna í Kaliforníuflóa og mynda stóra torfu. Þessi torfa syndir síðan rétt undir yfirborðinu. Sköturnar stökkva upp úr sjónum með reglulegu millibili.

 

Ekki er vitað afhverju sköturnar gera þetta og vísindamenn eru ekki alveg sammála. Ein kenningin er sú að sköturnar séu að reyna að losa sig við sníkjudýr. Önnur er á þá leið að… [Lesa meira]

Norðurkóresk stjórnvöld píndu suðurkóreskan leikstjóra til að gera Godzilla-eftirhermu

Kim Jong-il, fyrrum leiðtogi Norður-Kóreu, var mikill kvikmyndaáhugamaður. Árið 1978 leist honum illa á kvikmyndalífið í landinu og fór því að stunda mannrán á suðurkóresku kvikmyndagerðarfólki til að pína það til að gera fyrir sig bíómyndir.

Íslenskir leyniþjónustumenn handsama sænska kvikmyndaleikstjórann Ingmar Bergman seint á áttunda áratugnum og flytja hann nauðugan til Íslands. Hér á landi er hann svo píndur árum… [Lesa meira]

Pulgasari: Godzilla-kvikmyndin sem norðurkóresk stjórnvöld framleiddu með mannránum í fullri lengd

Kim Jong-il, fyrrum leiðtogi Norður-Kóreu, var mikill kvikmyndaáhugamaður. Árið 1978 leist honum illa á kvikmyndalífið í landinum og fór því að stunda mannrán á suðurkóresku kvikmyndagerðarfólki til að pína það til að gera fyrir sig bíómyndir. Lesið nánar um það hér.

 

Við hverfum nú aftur til miðalda í Kóreu. Í kringum árið 1000 var þar lénsveldi og konungar af Goryeoættinni… [Lesa meira]

Brasil-Islândia: Viðureignir Íslendinga við bestu fótboltaþjóðina

Heims­meist­ara­keppn­in í fót­bolta í Brasilíu hefst bráðum! Lemúrinn fjallar um ýmsa atburði sem tengir knatt­spyrnu­sögur Íslands og Brasilíu saman.

 

Hér er fjallað um viðureignir Brasilíumanna og Íslendinga á knattspyrnuvellinum. 

 

Fótboltavellir Brasilíu eru orðnir að nokk­urs konar mekka fót­bolt­ans í heim­inum því hvergi ann­ars staðar er jafn­mikil ástríða fyrir þess­ari íþrótt.

 

Ísland og Brasilía hafa ekki haft ýkja mikil tengsl í gegnum tíðina. Fyrir… [Lesa meira]

Var bestur í færeysku deildinni og kyssir bikarinn í fátækrahverfi í Rio

Heims­meist­ara­keppn­in í fót­bolta í Brasilíu hefst bráðum! Lemúrinn fjallar um ýmsa atburði sem tengir knatt­spyrnu­sögur Íslands og Brasilíu saman.

 

Lemúrinn flettir í stórskemmtilegri bók. Futebol: The Brazilian Way of Life eftir breska blaðamanninn Alex Bellos. Í formála segir:

 

Fótboltinn kom til Brasilíu árið 1894. Hin „ofbeldisfulla breska íþrótt“, eins og hún var kölluð, sló óvænt í gegn. Eftir nokkra… [Lesa meira]

D-dagurinn í lit

Vídjó

 

6. júní 1944, á svokölluðum D-degi, hleyptu Bandamenn af stað einn mestu innrás mannkynssögunnar á vígi Þjóðverja á ströndum Normandí í Norður-Frakklandi. Innrásin hafði mikil áhrif á gang stríðsins. Þó Hitler hefði þegar í raun tapað stríðinu þurfti gríðarlegt átak til að velta Þjóðverjum úr sessi í Vestur-Evrópu. Hér fyrir ofan sjáum við merkileg myndskeið… [Lesa meira]