Saddam Hussein og fjölskylda leikur sér með byssur

Saddam Hussein, síðar forseti og einræðisherra í Írak, leikur sér með byssu. Hann stríðir Sajida Talfah, eiginkonu sinni, sem virðist reyna að bægja skotvopninu frá þó hún brosi. Myndin er tekin í kringum 1970.

 

Og á myndbandinu hér fyrir neðan sjáum við Uday, son þeirra hjóna, í miðri veislu. Hann situr pollrólegur við veisluborð þangað til þjónn réttir honum AK 47-byssu. Sonur… [Lesa meira]

Kötlugos við sólarupprás, 1918

1918. Kötlugos við sólarupprás. „Séð yfir Rauðarárholt, sennilega frá Barónsstíg.“ Mynd eftir Magnús Ólafsson. (Ljósmyndasafn… [Lesa meira]

Baldur og Konni trylla lýðinn og rokka

Skemmtileg mynd frá Arnarhóli sýnir hina víðfrægu Baldur og Konna fyrir framan múg og margmenni árið 1953. (Þjóðminjasafn Íslands/via Dr. Gunni)

 

Baldur og Konni voru gríðarlega vinsælir frá um 1945 til 1964. Baldur Georgs Takács þýðandi, kennari, töframaður og búktalari lék með leikbrúðunni Konna með mikilli list.

 

Wikipedia: „Þeir skemmtu víða við góðar undirtektir, meðal annars í Tívolíinu í Vatnsmýrinni á árunum 1947-1960, á… [Lesa meira]

Palle Huld: Danski drengurinn sem ferðaðist umhverfis jörðina og var fyrirmyndin að Tinna

Árið 1928 fór 15 ára danskur drengur í heimsreisu á vegum dagblaðsins Politiken. Belginn Hergé notaði hann sem fyrirmynd að Tinna.

 

Þetta er eins og að sjá ljósmynd af minningu sem átti sér ekki stað. Tinni sjálfur, í fötunum sínum, þessum framandlegu klæðum frá þriðja áratugnum, hann er hér á ljósmynd. Hvað næst? Ljósmynd af jólasveinunum? Grýlu? Múmínálfunum?[Lesa meira]

„Ariaga! Ariaga II! Bariaga!“: Upplifun Bandaríkjamanna af fótbolta

Simpsonsþátturinn The Cartridge Family frá 1997 lýsir vel upplifun Bandaríkjamanna af fótbolta eða íþróttinni sem þeir kalla soccer.

 

Það er leiðinleg íþrótt, þar sem fá mörk eru skoruð og leikir enda stundum með hinu stórfurðulega fyrirbæri jafntefli sem Kaninn þekkir ekki. Knattspyrnuleikur fer fram í Springfield þar sem Mexíkó og Portúgal mætast.

 

Þarna sjáum við hina frægu leikmenn Ariaga, Ariaga II, Bariaga… [Lesa meira]

Bandaríski dátinn sem ferðaðist aftur til víkingaaldar á Íslandi

Hvað ef nútímamaður myndi ferðast aftur til ársins 900 á Íslandi? Hvernig yrði honum tekið?

 

Árið 1956 birti Poul Anderson smásöguna The Man Who Came Early, Maðurinn sem kom snemma, í tímaritinu The Magazine of Fantasy and Science Fiction.

 

Hinn dansk-bandaríski Anderson, sem lést árið 2001, var einn af merkustu höfundum Bandaríkjanna á sviði vísindaskáldsagna á tuttugustu öld og skrifaði ógrynni vinsælla bóka.

 

Eitt… [Lesa meira]