LEMÚRINN hefur ekki prófað tölvuleikinn Rock Simulator 2014 ennþá en er ansi spenntur fyrir honum. Það hlýtur að vera dásamlega skemmtilegt að leika stein í tölvunni. Allt um leikinn… [Lesa meira]
Iggy Pop dásamar Rómarsögu Gibbons í fræðitímariti
Rokkgoðsögnin Iggy Pop er mikill andans maður. Hann hefur til dæmis mikinn áhuga á Rómarsögu. Árið 1995 birti hann bráðskemmtilega grein um áhuga sinn á bókinni The History of the Decline and Fall of the Roman Empire, sem enski sagnfræðingurinn Edward Gibbon skrifaði á árunum 1776-1789. Það er eitt áhrifamesta sagnfræðirit allra tíma og lýsir í löngu máli sögu Rómaveldis, falli þess… [Lesa meira]
Alþjóðaflugvöllurinn í New York 1956
Í flugstöð Trans World Airlines á alþjóðaflugvellinum í New York sem síðar fékk nafnið John F. Kennedy… [Lesa meira]
Ísbirnir á sundi í leit að hafís
Íslendingar þekkja vel dæmi um að ísbirnir ferðist langar leiðir vegna hverfandi hafíss í Norðurhöfum. Hér eru mögnuð myndskeið sem sýna ísbirni á… [Lesa meira]
Leðurblakan, 5. þáttur: Draugaskipið Mary Celeste
Í desember árið 1872 lagði bandarísk brigantínan Mary Celeste af stað frá New York áleiðis til Ítalíu.
En á miðri leið kom eitthvað upp á. Þegar áhöfnin á öðru kaupskipi sigldi síðar fram á Mary Celeste við Asoreyjar rak skipið stjórnlaust, mannlaust með seglin rifin og tætt.
Hafði áhöfnin yfirgefið skipið, eða hafði eitthvað enn dularfyllra átt sér… [Lesa meira]
Leðurblakan, 4. þáttur: Tamam shud
Á áströlskum sumarmorgni í desember 1948 fannst lík karlmanns á ströndinni í rólegum strandbænum Glenelg, skammt frá Adeleide.
Lögreglumenn bæjarins, þegar þeir mættu á vakt þennan morgun og fréttu af líkfundinum, hafa kannski fyrst hugsað að þetta væri flækingur, eða ein af fyllibyttum bæjarins sem hefði lognast þarna útaf — eða jafnvel einn af ráðsettari bæjarbúum sem hefði fengið sér einum… [Lesa meira]
