Leðurblakan, 3. þáttur: Leyndarmál Glamis-kastala

„Ef þið hefðuð nokkurn grun um leyndarmál þessa kastala, hvers eðlis það leyndarmál er, þá mynduð þið þakka guði fyrir, að það eruð ekki þið, sem þurfið að varðveita það.“

 

Þessi setning er höfð eftir Claude Bowes-Lyon, þrettánda jarlinum af Strathmore í Skotlandi. Jarlinn lést árið 1904 án þess að hafa nokkurn tímann látið uppi meira en einungis þetta um hið… [Lesa meira]

Leðurblakan, 2. þáttur: Morðið á Mary Rogers

Þessi saga fjallar um einn dularfyllsta glæp í sögu New York-borgar og Bandaríkjanna allra, glæpan sem verið hefur óupplýstur í meira en 170 ár.

 

Árið 1841 hvarf ung og fögur stúlka, Mary Cecilia Rogers, sporlaust af heimili sínu í New York. Nokkru síðar fannst illa útleikið lík hennar fljótandi í Hudson-ánni. Morðið greip New York-búa heljartökum — en tilraunir lögreglu til að… [Lesa meira]

Leðurblakan, 1. þáttur: Talnastöðvar

Það er viðeigandi að fyrsti þáttur útvarpsþáttarins Leðurblökunnar fjalli um útvarp.

 

Sá sem ferðast um skuggalega afkima stuttbylgjuútvarpsins má eiga von á því að rekast á fjölmargar dularfullar stöðvar á ferðum sínum. Stöðvar sem útvarpa í sífellu furðulegum talnarunum og skuggalegri tónlist. Þær koma og fara, en alltaf má finna einhverjar.

 

Þær eru kallaðar „talnastöðvar” — eða number stations, á ensku — og… [Lesa meira]

„Allsherjarrottueyðing er að hefjast“: Rottuplágan mikla í Reykjavík 1946

Rottur gera nú mikinn óskunda í vesturbæ Reykjavíkur, og ógna þar börnum og sundlaugargestum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Reykvíkingar þurfa að kljást við þennan vágest. Árið 1946 var svo mikil rottuplága í Reykjavík að kalla þurfti á aðstoð að utan til að ráða niðurlögum… [Lesa meira]

Persónur Twin Peaks birtust í japanskri kaffiauglýsingu

Vídjó

Georgia er kaffidrykkur sem kókframleiðandinn The Coca-Cola Company markaðssetti í Japan en hann heitir eftir Georgíuríki í Bandaríkjunum þaðan sem fyrirtækið er.

 

Fyrir tæpum 25 árum síðan hóf hin skammlífa en áhrifamikla sjónvarpssería Tvídrangar eða Twin Peaks eftir David Lynch göngu sína.

 

Sérstakar auglýsingar voru gerðar fyrir kaffidrykkinn með persónum Tvídranga í leikstjórn Lynch.

 

Auglýsingarnar eru alls fjórar… [Lesa meira]

Hrekkjóttur rithöfundur lamaði London

Enskur rithöfundur veðjaði árið 1810 við vin sinn og sagðist geta gert hvaða hús sem er að því frægasta í London. Niðurstaðan var hrekkur þar sem hann sendi 4.000 sölumenn, presta, handverksmenn og ýmsa fleiri til nágrannakonu sinnar. Uppátækið lamaði London vegna óreiðunnar og umferðarteppunnar sem skapaðist.

 

Eldsnemma morguns hinn 27. nóvember 1810 var bankað laust á dyrnar í húsi númer… [Lesa meira]