Ómar Ragnarsson og Hljómar frá Bermúdaeyjum

Eyja með hvítum sandi og pálmatrjám eru ekki náttúruleg heimkynni Ómars Ragnarssonar. En hvernig má vera að texti eftir hann rataði á plötu hljómsveitar frá Bermúdaeyjum í miðju Bítlaæðinu? Flugvélin TF Frú og Bermúda-þríhyrningurinn koma reyndar ekki við sögu.

 

Byrjum á byrjuninni:

 

Bítlarnir ruddu veginn en í kjölfar þeirra slógu The Rolling Stones í gegn. Hvíta millistéttin í Bandaríkjunum uppgötvaði loks tónlist… [Lesa meira]

Stríðslokum fagnað á Rauða torginu í Moskvu 1945

Rauða torgið í Moskvu, kvöldið 9. maí 1945. Fagnað er sigri Rússa í seinni… [Lesa meira]

Myndir eftir ítalska málarann Giuseppe Arcimboldo, 2. hluti

Lemúrinn hefur áður birt myndir eftir ítalska 16. aldar málarann Giuseppe Arcimboldo. Verk hans sýna viðföng sín sem samsetningu af dýrum, ávöxtum, matvælum, börnum og öðrum hlutum. Hér eru fleiri myndir eftir þennan stórmerkilega listamann… [Lesa meira]

Tölvur í skrúðgöngu, 1987

Austurþýskar stúlkur sýna nýjustu tækni og vísindi Alþýðulýðveldisins í skrúðgöngu á 750 ára afmæli Berlínarborgar sumarið 1987.… [Lesa meira]

Paradísareyja offitusjúkra fjárglæframanna

Íslendingar sem kvarta sáran yfir örlögum okkar litla eyríkis geta prísað sig sæla að búa ekki á Nárú. Suðurhafseyjan Nárú í Míkrónesíu er heimsins minnsta eyríki, aðeins 21 km² (til samanburðar er Reykjavíkurborg 273 km²). Þar búa rúmlega 10.000 manns.

 

Eyjan var sérstaklega rík af fosfati og eftir að hafa fengið sjálfstæði frá Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Bretlandi (löndin þrjú deildu stjórn… [Lesa meira]

Ísland 1995: Bömpaðu baby bömpaðu!

Öllum er hollt að rifja upp fortíðina, ekki síst þegar hún er jafn glæsileg og Ísland var árið 1995. Í myndbandinu hér að neðan má sjá frábært myndband lagsins Bömpaðu baby bömpaðu með hljómsveitinni Fjallkonan. Hana skipuðu þeir Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifsson, Jóhann Hjörleifsson, Róbert Þórhallsson og Pétur Örn Guðmundsson, oft kenndur við Jesúm. Hljómsveitin var stofnuð í kringum uppsetningu… [Lesa meira]