Mannætumartröðin sem færði okkur saumavélina

Elias Howe hét maður sem átti sér þann draum að búa til saumavél. Þetta var rétt fyrir miðja 19. öld og fjöldi manna vann að smíði saumavélar. Ljóst var að sá sem fyrstur næði að þróa nothæfa vél yrði bæði forríkur og frægur. Svo Elias vann að vélinni sinni á nóttu sem degi.

 

Gallinn var sá að miklum erfiðleikum var bundið… [Lesa meira]

Geimskipið Óríon: hið þýska Star Trek

Á meðan geimkúrekinn James Tiberius Kirk þaut hraðar en ljósið um Alphafjórðunginn, barðist við Klingona og geimskrímsli, leitaði að heila Spock og tældi þokkadísir frá öðrum plánetum var þýskur geimkúreki iðinn við svipaða hluti. Lemúrinn kynnir: Geimskipið Óríon.

 

„Það sem hljómar eins og ævintýri í dag gæti orðið veruleiki morgundagsins. Þetta eru ævintýri dagsins handan morgundagsins. Það eru ekki lengur til… [Lesa meira]

Mohammad Reza Pahlavi tekur við krúnu Írans 1967

Hér sjáum við Mohammad Reza Pahlavi, shah (konung) Írans, ásamt fjölskyldu sinni skömmu eftir krýningarathöfnina 1967. Pahlavi ríkti þar í landi með stuðningi Bandaríkjanna fram til byltingarinnar frægu árið 1979, en þá færðust völdin í hendur núverandi klerkastjórnar.

 

Þessi síðasti konungur Írans lést svo úr krabbameini í útlegð í Egyptalandi ári eftir að hafa verið steypt af stóli.

 

Myndin er úr tímaritinu… [Lesa meira]

Cotard-heilkenni: Fólkið sem er sannfært um að það sé dáið

Í fræðigreinum gekk hún undir nafninu „Mademoiselle X”. Hún varð á vegi franska læknisins Jules Cotard árið 1880, og við hann er síðan kenndur einn sá furðulegasti sjúkdómur sem læknisfræðin kann frá að greina.

 

Mademoiselle X var 43 ára gömul, og virtist hin venjulegasta í alla staði. En sjálf var hún á öðru máli. Hún hélt því statt og stöðugt fram… [Lesa meira]

Mig langar: Vasaleikrit eftir Þorvald Þorsteinsson

MIG LANGAR. Vasaleikrit eftir Þorvald Þorsteinsson. Birtist í Eintaki í desember 1993. (Smellið á úrklippuna til að sjá hana í stærri… [Lesa meira]

George Best spilaði með Val og KA gegn Manchester United

Fótboltaleikur með George Best, Bryan Robson, Ray Wilkins, Jóhannesi Eðvaldssyni og sjálfum Þorgrími Þráinssyni. Þetta hlýtur að hafa verið draumur. Eða hvað?

Nei, aldeilis ekki. Því sá ótrúlegi atburður átti sér stað í ágústmánuði árið 1982 að lið Manchester United spilaði tvo leiki á Íslandi. Einn á Laugardalsvelli gegn Val og einn á Akureyrarvelli gegn KA. Ef það er ekki nóg,… [Lesa meira]