Chile-Sovétríkin 1973: Skorað í autt mark liðs sem var ekki á staðnum

Einn furðulegasti fótboltaleikur sögunnar er vafalaust leikur Chile og Sovétríkjanna í undankeppni fyrir HM 1974 í Vestur-Þýskalandi.

 

Þjóðirnar tvær börðust um síðasta lausa sætið í lokakeppninni og mættust tvisvar um haustið 1973. Fyrsti leikurinn fór fram í Moskvu þann 26. september og lauk honum með markalausu jafntefli.

 

Seinni leikurinn hins vegar, sem „fór fram“ þann 21. nóvember, verður lengi í minnum hafður. Hér… [Lesa meira]

Fangelsi í Argentínu árið 1877

Fangelsi í Buenos Aires árið 1877. (Archivo General de la… [Lesa meira]

Heimskort fyrir blinda

Upphleypt „stríðskort af Evrópu“, úr fyrri heimsstyrjöld, svo að blindir gætu líka fylgst með gangi stríðsins. (Library of… [Lesa meira]

Brasilíska söngkonan Astrud Gilberto tekur lagið árið 1965

Vídjó

Hér sjáum við brasilísku söngkonuna Astrud Gilberto flytja bossanóva lagið „Agua de Beber“ (ísl. „Drykkjarvatn“). Lagið er af sólóplötu hennar The Astrud Gilberto Album frá árinu 1965, og var samið af Antonio Carlos Jobim.

 

Astrud Gilberto er í dag ein þekktasta bossanóva söngkona heims. Hún ólst upp í Rio de Janeiro en flutti til Bandaríkjanna árið 1963, og skaust… [Lesa meira]

Edison drap fíl með 6.600 volta riðstraumi

Vídjó

Í byrjun 20. aldar varð fíllinn Topsy þremur mönnum að bana í æðiskasti. Hann hafði þá lengi verið grimmilega misnotaður og píndur af umsjónarmönnum sínum, sem störfuðu fyrir sirkus í New York.

 

Rekstraraðilar sirkusins ákváðu að þetta hættulega dýr skyldi tekið af lífi hið snarasta, og uppfinningamaðurinn frægi, Thomas Alva Edison, bauðst til þess sjá um… [Lesa meira]

Mörgæsin sem vildi deyja

Vídjó

Mörgæsin gengur í opinn dauðann. Hún gengur inn að miðju Suðurskautslandinu, þar sem ekkert æti er fyrir hana. Hún gengur þangað ein.

 

Það svarar spurningu þýska kvikmyndagerðarmannsins Werner Herzog til mörgæsasérfræðingsins í myndbandinu. „Er til geðveiki á meðal mörgæsa? Ég reyni að forðast að skilgreina geðveiki, eða óreiðu og ég á ekki við að mörgæsir… [Lesa meira]