Áróðursmálaráðuneytið: Svíi þegir

Af hverju prentuðu sænsk yfirvöld þessa teikningu af tígrisdýri í fánalitum í massavís í síðari heimsstyrjöldinni? Það er vegna þess að þetta er orðaleikur. Setningin „En svensk tiger“ hefur tvær merkingar á sænsku: Sænskur tígur og Svíi… [Lesa meira]

Varnarmálaráðherrann, eiturlyfjasalinn og rússneski njósnarinn

Sumarið 1961 var breska varnarmálaráðherranum, John Profumo, boðið í sundlaugarpartí í Cliveden, höfðingjasetri hinnar auðugu Astor fjölskyldu.

 

Þar kynntist hann ungri konu að nafni Christine Keeler en sundlaugapartí sem þessi voru kjörin staður fyrir breska áhrifamenn til að hitta föngulegar konur.  Fljótlega eftir þessi fyrstu kynni hófu þau Profumo og Keeler ástarsamband sem hvorugt þeirra fór sérstaklega leynt með.

… [Lesa meira]

Eina hljóðupptakan með Freud: „Mótspyrnan var mikil og óbil­gjörn“

Vídjó

Austurríski fræðimaðurinn Sigmund Freud (1856–1939) varð heimsþekktur sem brautryðjandi sálgreiningar. Á langri ævi sendi hann frá sér margvísleg skrif um mannshugann sem höfðu varanleg áhrif á vestræna fræðimennsku og heimspeki. Hér má heyra einu hljóðupptökuna af honum að tala.

 

Upptakan var gerð af breska ríkisfjölmiðlinum BBC árið 1938, og Freud mælir því á ensku. Hann var… [Lesa meira]

Detroit árið 1991: „Svona á að dansa við Kraftwerk“

Vídjó

Svona á sko að dansa við tónlist Kraftwerk. Þetta er klippa úr goðsagnakenndum dansþætti í kapalsjónvarpinu í Detroit árið 1991. Lagið er Nummern (Numbers) af plötunni Computerwelt (Computer World) frá 1981.

 

Höfum þetta í huga á næstu Iceland Airwaves-hátíð, en Kraftwerk mun mæta á hana, eins og fram hefur komið í… [Lesa meira]

Rauðhærðar konur í fyrirrúmi

Ein merkasta hreyfing í breskri listasögu er félagsskapur hinna svokölluðu „Forrafaelíta,“ eða The Pre-Raphaelite Brotherhood. Félagsskapurinn var formlega stofnaður byltingarárið mikla 1848 og voru meðlimir hópsins jafnt myndlistarmenn, myndhöggvarar, skáld og gagnrýnendur.

 

Leiðtogi hópsins var líklega myndlistarmaðurinn og skáldið Dante Gabriel Rosetti, sem var sérstaklega áberandi – en meðal annarra meðlima má nefna myndlistarmennina John Everett Millais og William Holman Hunt.… [Lesa meira]

Ruth Snyder í rafmagnsstólnum 1928

Bandaríska húsfrúin Ruth Snyder reyndi margoft að myrða Albert eiginmann sinn á árunum 1925-1927. Henni tókst það loks ásamt elskhuga sínum Judd Gray vorið 1927. Lögreglan hafði snarlega uppi á þeim skötuhjúum og í kjölfarið voru þau bæði fundin sek og dæmd til dauða. Hér sést fræg mynd af Snyder í rafmagnsstólnum 12. janúar 1928. Sú aftökuaðferð hafði þá verið í notkun vestanhafs í 38… [Lesa meira]