Daninn Kim Løvenskjold hefur á löngum starfsferli ljósmyndað strætisvagna um allan heim. Hann kom til Reykjavíkur árið 1989 og tók þessar skemmtilegu ljósmyndir af strætisvögnum SVR, eins og almenningssamgöngufyrirtækið hét áður en byggðasamstarfið Strætó bs. var stofnað árið 2001. Þarna bregður einnig fyrir Kópavogsstrætó.
Myndirnar sýna um leið hvernig borgin leit út í vetrarbúningi í lok níunda áratugarins. Løvenskjold hefur birt þúsundir mynda á vefsíðunni Danskebusser.dk og á Flickr, þar sem hann hefur samviskulega haldið utan um upplýsingar um tegundir strætisvagnanna og árgerðir.
© Kim Løvenskjold.








































































