Eitt dýrmætasta fornhandrit Gyðingdómsins, sem talið er vera eitt fullkomnasta eintak af hebresku biblíunni sem til er, Aleppó-handritið, er geymt við stranga öryggisgæslu í neðanjarðarhvelfingu á þjóðminjasafni Ísraelsríkis í Jerúsalem.

 

Handritið er kallað Aleppó-handritið því í meira en sex hundruð ár geymdu Gyðingar í sýrlensku borginni Aleppó handritið eins og sjáaldur augna sinna.

 

Það var að lokum flutt til Ísraels árið 1958, en sagan af því hvers vegna og hvernig það komst þangað — og hvað varð um allt að tvö hundruð síður úr handritinu, sem nú eru horfnar — er þrungin bæði spennu og leyndardómum.