Leðurblakan fjallar um dularfullt morðmál í smábæ í Iowa í Bandaríkjunum árið 1912.

 

Sumarnótt eina braust einhver inn á heimili Moore-fjölskyldunnar í bænum Villisca, og myrti allt heimilisfólkið með exi á hrottalegan hátt.

 

Í gegnum tíðina hafa margir verið grunaðir um glæpinn, allt frá keppinautum fjölskylduföðursins í viðskiptum til grunsamlegra farandpredikara.

 

En nýjustu rannsóknir benda til þess að sannleikurinn í málinu gæti verið langtum verri.