Hús bæjarfógetans í Reykjavík.
Vita glöggir lesendur hvar við erum stödd á þessari mynd?
Hana tók breski ljósmyndarinn Frederick W.W. Howell, sem ferðaðist til Íslands og Færeyja um aldamótin 1900. (Cornell University Library.)
UPPFÆRT:
Andrés Magnússon leysti gátuna um hús bæjarfógetans í Reykjavík:
„Flest húsanna eru horfin eða svo breytt að þau þekkjast vart lengur. Ekki öll þó. Hornið á Austurstræti og Veltusundi er vel þekkjanlegt ennþá og Gamla kvennaskólahúsið svo nærri upprunalegu horfi að vel þekkist.“