Skemmtileg nöfn á börnin: Hitler Jesús Kristur Mozart Jónsson

Nýlega komst hinn singapúrski Batman bin Suparman í fréttir en hann var dæmdur í fangelsi fyrir þjófnað og dópneyslu. En hann hafði áður hlotið frægð þegar ljósmynd af skilríkjum hans gekk eins og eldur í sinu um netheima. Nafngiftir gerast með ýmsum hætti í heiminum og sinn er siðurinn í hverju landi.

 

Í löndum Rómönsku Ameríku eru foreldrar oft mjög sköpunarglaðir… [Lesa meira]

Skordýrasöngur leikinn hægt hljómar eins og syngjandi fólk

Hljóð sem krybbur (skordýrategund skyld engisprettum) gefa frá sér hljóma eins og kór syngjandi manna þegar þau eru spiluð hægt. Ótrúlegt!

 

„Þegar ég hægði á upptökunni á ýmsa vegu fór þetta gamalkunna skordýrahljóð að breytast í eitthvað mjög dularfullt og flókið… næstum mannlegt,“ segir tónskáldið Jim Wilson sem á heiðurinn af þessari upptöku.

 

Hlustum á þetta. Þetta eru tvær upptökur leiknar á… [Lesa meira]

Anastasía prinsessa tók sjálfsmynd árið 1914

Anastasía Nikolaevna Rómanova, yfirhertogynja og yngsta dóttir Nikulásar II síðasta keisara Rússlands, var 13 ára að aldri þegar hún tók þessa sjálfsmynd. Prinsessan notaði spegil til að mynda sjálfa sig, svona rétt eins og milljónir táninga gera um allan heim í dag með snjallsímum sínum. Anastasía var því sannkallaður tískuviti (e. trendsetter)!

 

Prinsessan lét myndina fylgja bréfi sem hún sendi vinkonu… [Lesa meira]

Kennedy, Huxley og C.S. Lewis milli himins og helju

John F. Kennedy, þáverandi forseti Bandaríkjanna, var skotinn undir dularfullum kringumstæðum 22. nóvember 1963. Morðið var Bandaríkjamönnum mikið áfall og aldrei hefur náðst sátt um opinberu útskýringuna, að Lee Harwey Oswald hafi skotið hann einn síns liðs. Það að hann hafi sjálfur verið myrtur og því aldrei haldin réttarhöld um morð forsetans á örugglega þátt í því.

 

[Lesa meira]

Jólaplata Phil Spector kom út sama dag og Kennedy var myrtur

Í dag minnast fjölmiðlar um allan heim þess að 50 ár eru liðin frá dauða John F. Kennedy, forseta Bandaríkjanna. Í dag minnist Lemúrinn þess einnig að 50 ár eru liðin frá öllu gleðilegri atburði, útgáfu fyrstu konseptplötunnar og bestu jólaplötu allra tíma, A Christmas Gift for You from Philles Records.

 

Nú á dögum, þegar hægt er að kaupa einstakt lag,… [Lesa meira]

Var faðir Woody Harrelson maðurinn sem myrti John F. Kennedy?

Í dag eru liðin 50 ár frá því að þáverandi forseti Bandaríkjanna, John F. Kennedy, var myrtur í Dallas, í Texas. Morðið á Kennedy er án efa einn umtalaðasti viðburður 20. aldarinnar, ekki aðeins fyrir Bandaríkjamenn – heldur heimsbyggðina alla. Þeir sem muna eftir 22. nóvember árið 1963 geta til að mynda vafalaust sagt hverjum sem vita vill, hvar þeir… [Lesa meira]