Fyrsta kvikmyndasýningin

Vídjó

Hinn 22. mars 1895 stóðu hinir frönsku Lumière-bræður að fyrstu kvikmyndasýningu sögunnar. Fyrsta kvikmyndin sem heimurinn sá var hvorki löng né með flókinn söguþráð því hún sýndi nokkra verkamenn fyrir utan verksmiðju þeirra bræðra. En fleiri myndir fylgdu í kjölfarið og kvikmyndalistin varð til.

 

lumieri-naceduli… [Lesa meira]

Mondrian-kakan: fullkominn samruni matreiðslu og myndlistar

Bandaríski bakarameistarinn Caitlin Freeman er snillingur. Hún starfar á kaffihúsinu Blue Bottle Café sem er staðsett í MoMA (Museum of Modern Art) í San Francisco og finnst það einstaklega gaman.

 

Freeman hefur nefnilega tekist að færa sér vinnuumhverfi sitt í nyt, með því að sameina áhuga sinn og ástríðu fyrir bæði 20. aldar myndlist og matreiðslu. Í fyrra gaf hún út… [Lesa meira]

Fréttamynd um glímu frá 1932

Vídjó

Lemúrinn hefur fjallað töluvert um glímu, til dæmis um afrek Jóhannesar á Borg og það þegar bandarískar stúlkur voru hvattar til að læra þessa forníslensku bardagalist til að sigrast á þjófum og öðrum fautum. Hér sjáum við skemmtilegt myndskeið frá fréttamyndasmiðjunni British Pathé frá 1932 þar sem glíman er kynnt… [Lesa meira]

Tónlist í tilefni þjóðhátíðardags Namibíu

Í dag, 21. mars, eru liðin 24 ár síðan Namibía öðlaðist sjálfstæði frá Suður-Afríku aðskilnaðarstefnunnar. Suður-Afríka tók landið yfir eftir fyrri heimsstyrjöld, en landið var áður þýsk nýlenda. Sjálfstæðið kom loksins árið 1990 í kjölfar langdregins skæruhernaðar og erfiðra samningaviðræða Sameinuðu þjóðanna.

 

Lemúrinn óskar Namibíumönnum til hamingju með daginn! Til þess að halda upp á þjóðhátíðardaginn skulum við horfa og hlýða… [Lesa meira]

Sovéskur njósnari hlær við eigin aftöku

Mynd þessi var tekin í Rukajärvi í Austur-Karelíu í nóvember 1942. Hún sýnir finnskan hermann taka sovéskan njósnara af lífi með byssu. Sovétmaðurinn hlær og mætir örlögum sínum með bros á vör. Hvað á maður annars til bragðs að taka á svona stundu?

 

Þess ber að geta að myndin er ekki úr Vetrarstríðinu, heldur frá þeim tíma er Finnland var gengið í lið… [Lesa meira]

Bandarískir vinir Finnlands gerðu áróðursmynd um Vetrarstríðið 1939

Vídjó

Lemúrinn hefur áður fjallað um Vetrarstríðið, en það hófst haustið 1939 þegar Sovétríkin réð­ust inn í Finnland. Stríðið stóð í rúma þrjá mán­uði og varð 150 þúsund manns að bana. Orsakir átak­anna má rekja til Stalíns, harðstjórans ógurlega, sem vildi ná undir sov­ésk yfir­ráð þau svæði sem runnið höfðu frá Rússum til Finna við… [Lesa meira]