The Samsonadzes: Simpson-fjölskylda Georgíu

Þættirnir Samsonadzes fjalla um fjölskyldu í fyrrum Sovétlýðveldinu Georgíu. Á síðustu árum hafa þeir verið vinsælasta sjónvarpsefni landsins. Þeir fjalla um fjölskyldu sem er gul á litinn. Samsonadze-fjölskyldan samanstendur af heimskum heimilisföður, konu hans og tveimur börnum en þau búa í ímyndaðri borg sem þó er nauðalík Tbilisi, höfuðborg Georgíu. Páfagaukur fjölskyldunnar fer með stórt hlutverk.

 

Þrátt fyrir að teiknmimyndaþættirnir séu… [Lesa meira]

Norrænir menn finna strendur Íslands

Mynd þessi eftir Hélène Adeline Guerber sýnir norræna menn finna strendur Íslands. Hún birtist fyrst í bókinni Myths of the Norsemen from the Eddas and Sagas, sem var gefin út í Lundúnum árið 1909.

 

Bókin er löngu fallin úr höfundarétti og er hægt að nálgast… [Lesa meira]

Bresnjeff líst vel á kærustu Kissingers

Hér sést Leóníd Bresnjeff, aðal­rit­ari sov­éska komm­ún­ista­flokks­ins og æðsti leið­togi Sovétríkjanna, dást að bakhlið bandarísku leikkonunnar Jill St. John, þáverandi kærustu Henry Kissinger, en hún lék meðal annars í Bond-myndinni Diamonds are Forever. Til hægri stendur foreseti Bandaríkjanna, Richard Nixon. Lemúrinn kannast ekki við manninn fyrir miðju, en hann deilir bersýnilega áhuga Bresnjeffs.

 

Myndin var tekin árið 1973 á heimili Nixons í San… [Lesa meira]

Ófrýnilegur flóðhestur dregur vagn á eftir sér

Hér sést stór og mikill flóðhestur draga á eftir sér vagn með farþega. Myndin er tekin í sirkus í Bandaríkjunum sirka 1923-1924. Flóðhesturinn virðist ekkert sérlega ánægður með þetta… [Lesa meira]

NÝTT: Á ferð um rúm og tíma með Lemúrnum

Lemúrinn kynnir tvo nýja fídusa á vefnum, annars vegar LEMÚRSKORTIÐ og hins vegar TÍMALÍNUNA. Nýjungarnar gera gestum kleift að ferðast um Lemúrinn eftir heimshornum, öldum og áratugum. Við vonum að lesendur nýti sér þessar nýju aðferðir til þess að vafra um greinasafnið, sem geymir nú hátt í 1500… [Lesa meira]

Bresnjeff og síminn

Leóníd Bresnjeff, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins og æðsti leiðtogi Sovétríkjanna, talar í síma á skýlunni einni. Myndin er tekin seint í valdatíð hans, sennilega í lok 8.… [Lesa meira]