Myndband sýnir stækkun Amsterdam á 17. öld

Vídjó

Borgarskjalasafn Amsterdam, höfuðborgar Hollands, hefur útbúið þetta snjalla myndband sem sýnir uppbyggingu hverfa í Amsterdam á 17. öld. Holland var öflugt siglinga- og nýlenduveldi á þessum árum og auðurinn sem skapaðist við það skilaði sér til… [Lesa meira]

Úrillur Orson Welles í upptökuveri

Orson Welles spratt ungur fram í sjónarsviðið 30. október 1938 með flutningi sínum á útvarpsleikritinu War of the Worlds.

 

Við tók glæstur kvikmyndaferill hjá honum bæði sem leikari og leikstjóri en tæpri hálfri öld síðar, í viðtali febrúar 1983, lét hann hafa þetta eftir sér:

 

„Var eitthvað sem ég lét ógert í útvarpinu? Útvarpið elskaði ég mest allra miðla. Þessi undursamlegi… [Lesa meira]

25. þáttur: Ferðalangar á Íslandi og ferðasaga breskrar yfirstéttarstúlku

Lemúrinn fjallar um ýmsa ferðalanga á Íslandi og álit þeirra á landi og þjóð. Við gluggum í ferðasögu breskrar stúlku sem kom til Íslands í útreiðartúr seint á nítjándu öld. Þá verður lesið úr gamalli bók um kynþætti heimsins en þar er fjallað um „íslenska kynstofninn“ og sérkenni… [Lesa meira]

Smurðu líkin: Neonljósarúm Marcos og risastytta Evitu

Lenín gamli liggur enn smurður á Rauða torginu. Hann er ekki eini leiðtoginn sem fengið hefur þann heiður að lifa slíku framhaldslífi. Hér er sagt frá smurðum líkum Evitu Perón í Argentínu og Ferdinands Marcos á Filippseyjum.

 

Eva Perón, eða Evita, var eiginkona Juans Domingo Perón, sem var forseti Argentínu um miðja tuttugustu öldina. Evita var mikil hetja í augum milljóna… [Lesa meira]

„Furðufuglarnir“ í bænum: Oddur sterki og Óli Maggadon

Oddur sterki var þjóð­sagna­kennd per­sóna, kyn­legur kvistur, í Reykjavík á millistríðsárunum. Lemúrinn hefur áður birt myndir af honum í víkingabúningi og hugsanlegri upptöku með rödd hans sem Jón Leifs gerði. Hér verður fjallað um hann og annan eftirminnilegan mann frá sömu árum, Óla Maggadon.

 

Efsta myndin er af Oddi og er úr stórkostlegu ljósmyndasafni hollenska meistarans Willems van… [Lesa meira]

Barnaskóli Samúels, 1914

Hér sjáum við Samúel Eggertsson barnakennara, eiginkonu hans Mörtu E. Stefánsdóttur og nemendur í barnaskóla þeirra á Laugavegi.

 

Pétur Pétursson skrifar um þessa mynd:

 

„Meðal barnanna eru þó nokkur sem þekkjast við fyrstu sýn. Í efstu röð má greina Maríu Markan [óperusöngkonu]. Það sér ei nein þreytumerki á Maríu þótt hún eigi langa leið að sækja í skólann. Á þessum árum er faðir hennar, Einar Markússon, ráðsmaður Laugarnesspítalans. María… [Lesa meira]