„Þetta var algjört kynferðislegt stjórnleysi“: Skeggjaðar dragdrottningar á hippatímabilinu

„Þetta var algjört kynferðislegt stjórnleysi. Sem er alltaf dásamlegt“ – John Waters.

 

Evrópubúar studdu hina skeggjuðu dragstjörnu Conchitu Wurst til sigurs í Eurovision fyrir stuttu. Conchita er skeggjuð dragdrottning og miðað við komment á Feisbúkksíðu hennar kemur það fjölda þröngsýns fólks í opna skjöldu sem finnst það þurfa að tjá sig um meinta úrkynjun. Conchita er alls ekki sú fyrsta í… [Lesa meira]

Íslensk morðsaga frá 1704: Var dæmdur til dauða fyrir morð og höfuð hans sett á staur

Árið 1704 var óhugnanlegt morð framið í grennd við Reykjavík. Morðingjarnir, Sigurður og Steinunn, voru dæmd til dauða. Hann var hálshöggvinn og höfuð hans sett á staur öðrum til viðvörunar. Henni var drekkt. 

 

Gegnt Bústaðakirkju var eitt sinn bærinn Bútsstaðir. Raunar heitir Bústaðahverfið, og kirkjan þar með einnig, eftir Bútsstöðum en einhverntímann á seinni árum hafa t og s víxlast. Til er… [Lesa meira]

Hvernig á að bera fram nafn Hery Rajaonarimampianina, forseta Madagaskar?

Hery Rajaonarimampianina er nýr forseti Madagaskar, landsins sem er heimkynni lemúra. Atli Freyr Steinþórsson tók himininn höndum þegar hann komst loksins að því hvernig nafn hans er borið fram.

 

Ég þarf að gera játningu: Mér finnst ákaflega óþægilegt að vita ekki hvernig erlend nöfn eru borin fram. Þetta á við um mannanöfn, örnefni, allt. Það skiptir ekki máli hvaða tungumál á… [Lesa meira]

Áróðursmálaráðuneytið: Læknarnir reykja Camel

„Fleiri læknar reykja Camel heldur en nokkra aðra sígarettutegund.“

 

Þetta bandaríska auglýsingaplakat frá árinu 1949 var hluti af umfangsmikilli markaðsherferð Camel… [Lesa meira]

Gort lávarður um Íslendinga 1940: ,,Vinalegt og gestrisið fólk“

Vídjó

Þetta stutta breska fræðslu/áróðurs-myndband frá stríðsárunum er úr British Pathé filmusafninu og ber heitið „Lord Gort on Iceland“.

 

Gort lávarður var hershöfðingi í breska hernum og hafði fyrr á árinu leitt herdeildirnar sem börðust í sögufrægu orrustunni við Dunkirk. Í myndbandinu greinir hann frá aðstæðum á Íslandi við heimsókn sína og við sjáum myndskeið af breskum hermönnum að blanda… [Lesa meira]

Albert Camus sendi barnakennara sínum þakkarbréf þegar hann fékk Nóbelinn

Franski rithöfundurinn Albert Camus hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1957. Venju samkvæmt hélt hinn nýbakaði verðlaunahafi ræðu í Stokkhólmsráðhúsi þar sem hann þakkaði fyrir sig, en hér má lesa ræðuna. En stuttu eftir athöfnina ritaði Camus bréf til barnakennara síns, Louis Germain, og þakkaði honum fyrir ómetanlega aðstoð og kennslu í æsku.

 

Hér er þetta bréf á íslensku:

 

19. nóvember… [Lesa meira]