Leðurblakan, 5. þáttur: Draugaskipið Mary Celeste

Í desember árið 1872 lagði bandarísk brigantínan Mary Celeste af stað frá New York áleiðis til Ítalíu.

 

En á miðri leið kom eitthvað upp á. Þegar áhöfnin á öðru kaupskipi sigldi síðar fram á Mary Celeste við Asoreyjar rak skipið stjórnlaust, mannlaust með seglin rifin og tætt.

 

Hafði áhöfnin yfirgefið skipið, eða hafði eitthvað enn dularfyllra átt sér… [Lesa meira]

Leðurblakan, 4. þáttur: Tamam shud

Á áströlskum sumarmorgni í desember 1948 fannst lík karlmanns á ströndinni í rólegum strandbænum Glenelg, skammt frá Adeleide.

 

Lögreglumenn bæjarins, þegar þeir mættu á vakt þennan morgun og fréttu af líkfundinum, hafa kannski fyrst hugsað að þetta væri flækingur, eða ein af fyllibyttum bæjarins sem hefði lognast þarna útaf — eða jafnvel einn af ráðsettari bæjarbúum sem hefði fengið sér einum… [Lesa meira]

Leðurblakan, 3. þáttur: Leyndarmál Glamis-kastala

„Ef þið hefðuð nokkurn grun um leyndarmál þessa kastala, hvers eðlis það leyndarmál er, þá mynduð þið þakka guði fyrir, að það eruð ekki þið, sem þurfið að varðveita það.“

 

Þessi setning er höfð eftir Claude Bowes-Lyon, þrettánda jarlinum af Strathmore í Skotlandi. Jarlinn lést árið 1904 án þess að hafa nokkurn tímann látið uppi meira en einungis þetta um hið… [Lesa meira]

Leðurblakan, 2. þáttur: Morðið á Mary Rogers

Þessi saga fjallar um einn dularfyllsta glæp í sögu New York-borgar og Bandaríkjanna allra, glæpan sem verið hefur óupplýstur í meira en 170 ár.

 

Árið 1841 hvarf ung og fögur stúlka, Mary Cecilia Rogers, sporlaust af heimili sínu í New York. Nokkru síðar fannst illa útleikið lík hennar fljótandi í Hudson-ánni. Morðið greip New York-búa heljartökum — en tilraunir lögreglu til að… [Lesa meira]

Leðurblakan, 1. þáttur: Talnastöðvar

Það er viðeigandi að fyrsti þáttur útvarpsþáttarins Leðurblökunnar fjalli um útvarp.

 

Sá sem ferðast um skuggalega afkima stuttbylgjuútvarpsins má eiga von á því að rekast á fjölmargar dularfullar stöðvar á ferðum sínum. Stöðvar sem útvarpa í sífellu furðulegum talnarunum og skuggalegri tónlist. Þær koma og fara, en alltaf má finna einhverjar.

 

Þær eru kallaðar „talnastöðvar” — eða number stations, á ensku — og… [Lesa meira]

„Allsherjarrottueyðing er að hefjast“: Rottuplágan mikla í Reykjavík 1946

Rottur gera nú mikinn óskunda í vesturbæ Reykjavíkur, og ógna þar börnum og sundlaugargestum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Reykvíkingar þurfa að kljást við þennan vágest. Árið 1946 var svo mikil rottuplága í Reykjavík að kalla þurfti á aðstoð að utan til að ráða niðurlögum… [Lesa meira]