Steypt ásjóna Vladimirs Lenín prýðir þessa glæsilegu stíflu við Kirov-vatnsbólið í norðvesturhluta Kirgistan, um 15 kílómetrum frá landamærunum við Kasakstan. Stíflan var vígð árið 1976 og er enn í fullri notkun. Ljósmynd eftir Grégoire… [Lesa meira]
Regnbogi yfir ‘Viking Mall’: Stórskemmtilegar Íslandsmyndir bandarísks hermanns frá 1983 til 1984
Maður er nefndur Roger L. Goodman. Hann var hermaður hjá Bandaríkjaher og starfaði fyrir hann á herstöðinni í Keflavík frá júní 1978 til maí 1979 og svo aftur frá nóvember 1981 til desember 1984.
Goodman er frábær ljósmyndari eins og við sjáum hér fyrir neðan. Ísland um 1983 og 1984 birtist á myndum hans með einkar athyglisverðum sjónarhornum… [Lesa meira]
Hinn dularfulli eiginmaður Dolly Parton
Carl Dean, þá 24 ára, og Dolly Parton, þá 20 ára, nýgift í smábænum Ringgold í Georgíuríki. Árið er 1966. Þau eru enn gift í dag. Dean hefur verið aðdáendum Parton nokkur ráðgáta. Hann hefur ávallt forðast sviðsljósið og vildi ekki nýta sér himinháar tekjur eiginkonu sinnar til að halda sér á floti. Þess í stað rak hann malbikunarfyrirtæki… [Lesa meira]
Gullstyttan af Maó, 2016
Maóaðdáendur í sveitum Henan-héraðs í Kína reistu 37 metra styttu af kommúnistaleiðtoganum Maó Zedong árið 2016. Aðeins nokkrum dögum síðar var þessi gríðarstóra gyllta stytta hins vegar rifin niður.
Yfirvöld á svæðinu lögðu ekki blessun sína yfir verkið. Opinbera útskýringin var að sveitungarnir hefðu ekki sótt um byggingarleyfi.
[Lesa meira] Póstkort sem Borges sendi móður sinni frá Íslandi, 1971
Argentínski rithöfundurinn Jorge Luis Borges sendi þetta póstkort til móður sinnar frá Reykjavík, 14. apríl 1971. Þetta var fyrsta af nokkrum Íslandsheimsóknum hans.
„Reykjavík er minna tignarleg en sveitarfélagið Lomas [úthverfi í Buenos Aires] og óendanlega fallegri, eins einkennilegt og það er,“ skrifar Borges og segist sakna móður sinnar og hugsa stöðugt til garðsins heima hjá henni, eins… [Lesa meira]
Slipshod-systur og hælið
Ljósmynd sveimar um hyldýpi netsins og á að sýna Slipshod-systurnar sem margt fyrir löngu ráku hina hryllilegu heilbrigðisstofnun „The Slipshod Home for Feeble Minded Children“.
Lemúrnum hefur ekki tekist að staðfesta ætterni kvennanna á myndinni en þær eru ansi svalar. … [Lesa meira]