Leðurblakan, 11. þáttur: Konan í Ísdalnum

Á fallegum vetrardegi 1970 rakst maður á göngu um Ísdalinn í nágrenni Bergen á illa brunnið lík konu í fjallshlíðinni.

 

Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að mánuðina fyrir andlát sitt hafði konan ferðast vítt og breitt um Noreg og Evrópu, en notast á ferðum sínum við ótal mismunandi fölsk nöfn og fölsuð skilríki.

 

En hver var konan í Ísdalnum í raun… [Lesa meira]

Vitra svínið Toby spilar á spil og les hugsanir

„TOBY — vitiborna svínið, eini fræðingur sinnar tegundar í heiminum.

 

Þetta ótrúlega dýr stafar og les, reiknar, spilar á spil, segir hvaða manni sem er hvað klukkan er upp á mínútu á þeirra eigin úri.

 

Og það sem undraverðast er, hann les hugsanir manna.“

 

Þessari auglýsingu var dreift í Lundúnum um 1817. Vitiborin eða „lærð svín“ nutu nokkurra vinsælda á fjölleikasýningum í Evrópu og Bandaríkjunum… [Lesa meira]

Keflavík, 1804

Hér sjáum við teikningu af Keflavík árið 1804, eftir danska kortagerðarmanninn Poul de Løvenørn. Staðurinn sést hér utan af víkinni. Elstu hús Jacobæusar eru lengst til hægri, en myndin er frekar ónákvæm þar sem víkin er miklu breiðari en Vatnsnesið til vinstri gefur til kynna.

 

Heimild: … [Lesa meira]

Nasista-swinghljómsveitin Charlie and his Orchestra

Í Þýskalandi nasismans var hin nýja swing- og djasstónlist litin hornauga af ráðamönnum og talin sérlega úrkynjuð þar sem hún átti upptök sín í menningu blökkufólks í Bandaríkjunum. Slík tónlist var kölluð Negermusik. Hún þótti alls ekki við hæfi “arískra” Þjóðverja, og fékk litla spilun þar í landi eftir að nasistar komust til… [Lesa meira]

Rækjukaupmaður byggði eftirlíkingu af Höfða í Japan

Ísland var nafli alheimsins í nokkra daga þegar leiðtogafundurinn fór fram í Reykjavík í október 1986. Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhaíl Gorbatsjov, aðalritari Sovétríkjanna, funduðu í Höfða við Borgartún.

 

Japanska rækjukaupmanninum og Íslandsvininum Sakuhana fannst viðburðurinn svo merkilegur að hann hann reisti nákvæma eftirlíkingu af Höfða á heimaslóðum sínum í Hyogo í Japan.

 

Morgunblaðið birti myndina sem við sjáum hér að ofan í september 1990… [Lesa meira]

„Stórhættulegt að kyssa í loðkápu aðra mínútuna og léttklæddur þá næstu“

Þessi grein birtist í Heimilisritinu árið 1957:

 

„Reglur um kossa Þessar reglur um kossa birtust nýlega í enskri bók:

 

1. Í samkvæmi, þar sem kossaleikir eru tíðkaðir, ber að gæta þess að skola munninn oft og vel. 2. Gætið þess að verða ekki fyrir snöggum hitabreytingum, er þið kyssið. 3. Kyssið ekki á fjölförnum stöðum. 4. Það er stórhættulegt að kyssa í loðkápu aðra mínútuna… [Lesa meira]