Olía, íslam og kjarnorkuúrgangur: Á ferð um „stan“-löndin í Mið-Asíu

Vídjó

Í BBC þáttaröðinni Meet the Stans frá árinu 2003 ferðast breski sjón­varps­mað­ur­inn Simon Reeve um fjögur fyrrum sovétlýðveldi í Mið-Asíu: Kasakstan, Kirgisistan, Tadsjikistan og Úsbekistan.

 

Fæstir vita mikið um þessi fátæku, afskekktu og landluktu ríki. Þau voru eitt sinni mikilvægur áfangastaður á Silkiveginum svokallaða sem á miðöldum rann frá Kína til Evrópu gegnum fornu borgina Samarkand,… [Lesa meira]

Leðurblakan, 19. þáttur: Börnin sem fuðruðu upp

Á aðfaranótt jóladags 1945 brann hús fjölskyldu nokkurrar í smábæ í Vestur-Virginíu til grunna. Sodder-hjónin og þrjú börn sluppu út við illan leik, en hin börnin þeirra fimm hurfu inn í eldhafið.

 

Eftirlifandi fjölskyldumeðlimir urðu þó fljótt handviss um að börnin hefðu ekki farist í brunanum — enda fundust líkamsleifar þeirra aldrei í brunarústunum.

 

Þá bentu ýmsir dularfullir atburðir sem fjölskyldan varð… [Lesa meira]

Gömul heimildarmynd um sögu New York-borgar

Vídjó

Þessi merkilega gamla heimildarmynd frá árinu 1946 heitir New York: Story of a City og rekur sögu New York-borgar í Bandaríkjunum.

 

Fjallað er um kaupin á Manhattan-eyju frá indjánum árið 1626 fyrir smápeninga og sagt frá þeim tíma þegar borgin var hollensk nýlenda og hét New Amsterdam. Englendingar tóku borgina með valdi árið 1664… [Lesa meira]

Robert Z‘Dar: Maðurinn með kjálkann

Þeir sem áttu það til að sækja sér afþreyingu úr hundraðkallarekkanum á myndbandaleigum bæjarins, einhvern tímann fyrir aldamót, hafa vafalaust rambað á bíómynd með manninum með kjálkann ógurlega, Robert Z‘Dar.

 

Ungur Robert Z'dar.

Ungur Robert Z’Dar.

Svo sterkir eru andlitsdrættir Z’Dar að þeir sem hafa einu sinni séð honum bregða fyrir,… [Lesa meira]

„The Great War“: Horfið á fræga heimildarþætti BBC frá 1964 um fyrra stríð

Vídjó

Árið 1964 voru 50 ár liðin frá upphafi fyrri heimsstyrjaldar og breska ríkisútvarpið BBC framleiddi af því tilefni vandaða þáttaröð um stríðið í samvinnu við CBC frá Kanada og ABC frá Ástralíu.

 

Í þáttunum, sem eru 26 talsins og um það bil 40 mínútur að lengd, er birt gífurlega mikið af myndefni frá 1914… [Lesa meira]

Var risafuglinn Rok til í alvöru?

Í fornum sögum frá Indlandshafi segir frá risastórum fugli sem réðist á menn og gat borið skepnur á stærð við fíla og nashyrninga í klóm sínum. Þetta voru þjóðsögur af fuglinum Rok.

 

Í fimmtu sjóferð Sinbaðs sæfara, sem sagt er frá í sagnabálkinum Þúsund og einni nótt, lenti Sinbað ásamt mönnum sínum á eyðilegri strönd lítillar eyjar. Þar komu þeir auga… [Lesa meira]