Bíó Lemúr: Sódóma Reykjavík

Ein allra besta kvikmynd Íslandssögunnar, Sódóma Reykjavík (1992), í leikstjórn Óskars Jónassonar, er í heild sinni á youtube. Í aðalhlutverkum eru meðal annarra Björn Jörundur Friðbjörnsson í hlutverki Axels, Margrét Hugrún Gústavsdóttir sem Mæja, Sigurjón Kjartansson sem hinn erfiði en minnisgóði Orri, Sóley Elíasdóttir sem Unnur, Eggert Þorleifsson sem glæpaforinginn Aggi Flinki og ekki má gleyma Helga Björnssyni í… [Lesa meira]

Ævintýralegar afleiðingar þess að spila körfubolta við Kára Stefánsson

Hvað gerist þegar Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, skorar á þig í körfubolta í World Class? Ef þú ert Guðjón Hauksson, þá körfuboltamaður í Val á 24. aldursári, þiggurðu boðið og stendur þig jafnvel vonum framar. En það er aðeins byrjunin á sögunni. Spólum til baka um 15 ár og heyrum eina allra bestu Kárasögu sem til er. Og… [Lesa meira]

Lalli Johns: Sígild mynd um hrjúfari Reykjavík um aldamótin

Það var seint að kvöldi, að vetri til, einhvern tímann á fyrstu árum nýrrar aldar, að maður kom á Aðalvídeoleiguna á Klapparstíg í Reykjavík.

Hann hét Lárus Björn Svavarsson, betur þekktur sem Lalli Johns.

Hann var í leit að spólu. Myndinni um hann… [Lesa meira]

David Lynch eldar quinoa

Árið 2014 var bandaríski listamaðurinn og kvikmyndaleikstjórinn David Lynch afar hrifinn að quinoa/kínóa.

Hér sýnir hann hvernig á að elda quinoa, bíða eftir quinoa, og njóta quinoa.

Tónlistin í myndskeiðinu, sem er algerlega mögnuð, er rétt eins og quinoa-uppskriftin, eftir Lynch sjálfan.… [Lesa meira]

50 ár frá WAR IS OVER!

Þann 15. desember árið 1969 fór af stað herferð, sem má lýsa sem mótmælaherferð, listaviðburði og alþjóðlegri jólakveðju frá listaparinu John Lennon og Yoko Ono.

Um var að ræða stóra auglýsingaborða, lesnar útvarpsauglýsingar, heilsíðuauglýsingar í prentmiðlum, auk dreifingar á póstkortum og plakötum í 12 borgum um allan heim. Þær voru New York, Los Angeles, Amsterdam, Toronto, Aþena, Róm,… [Lesa meira]

Árlegar jólamyndir þýskra hjóna 1900-1942 endurspegla söguna

Hjónin Richard og Anna Wagner í Berlín tóku mynd af sér við jólatréð hvert ár í yfir fjóra áratugi.

Þau sendu ljósmyndirnar sem jólakort til vina og ættingja. Sú fyrsta var tekin á aðfangadagskvöld 1900, árið sem Wagner-hjónin giftust, en sú síðasta 1942.

Óhætt er að segja að myndirnar endurspegli sögu Þýskalands, sem var auðvitað sérstaklega stormasöm á tímabilinu.… [Lesa meira]